2. janúar
2. janúar er 2. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 363 dagar (364 á hlaupári) eru eftir af árinu.
Atburðir
- 533 - Jóhannes 2. varð páfi.
- 1492 - Boabdil, síðasti márakonungurinn í Granada, gafst upp fyrir her Ferdínands og Ísabellu eftir langt umsátur. Þar með lauk 800 ára veldi Mára á Íberíuskaga.
- 1653 - Mikið tjón varð á Eyrarbakka og víðar í sjávarflóði, sem nefnt hefur verið Háeyrarflóðið.
- 1793 - Rússland og Prússland skiptu Póllandi á milli sín.
- 1833 - Bretar hertóku Falklandseyjar.
- 1870 - Bygging Brooklyn-brúarinnar hófst.
- 1871 - Stöðulögin gengu í gildi. Þau kváðu á um að Ísland væri óaðskiljanlegur hluti hins danska ríkis, en þó með sérstök landsréttindi.
- 1871 - Íslensk króna varð til með sérstakri lagasetningu.
- 1887 - Prentarafélagið, fyrsta verkalýðsfélagið á Íslandi, var stofnað.
- 1899 - KFUM var stofnað á Íslandi af séra Friðriki Friðrikssyni.
- 1900 - Chicago-skurðurinn var opnaður.
- 1908 - Lögbirtingablaðið kom fyrst út á Íslandi.
- 1915 - Táragas var í fyrsta sinn notað í hernaði er Þjóðverjar beittu því gegn Rússum.
- 1920 - Yfir 4.000 grunaðir kommúnistar og anarkistar voru handteknir í Bandaríkjunum.
- 1932 - Vegna kreppunnar hófu söfnuðirnir í Reykjavík að bjóða upp á ókeypis máltíðir í Franska spítalanum. Einnig fengu fátæk heimili mjólkursendingar.
- 1942 - Japanir hertóku borgina Manila á Filippseyjum.
- 1959 - Sovétríkin skutu á loft fyrsta geimfarinu, Luna 1, sem fór á braut um sólina 2 dögum síðar. Þessi dagur telst vera fyrsti dagur geimaldar.
- 1971 - 66 létust þegar stigi gaf sig á Ibrox Park í Glasgow í leik milli Celtic og Rangers.
- 1972 - Bandaríska geimfarið Mariner 9 hóf kortlagningu plánetunnar Mars.
- 1981 - Breski raðmorðinginn Peter Sutcliffe var handtekinn vegna stolinna númeraplatna.
- 1987 - Tjadher eyðilagði vopnaða bílalest frá Líbýu í orrustunni um Fada.
- 1988 - Efnahagsumbætur Mikhaíls Gorbatsjovs, Perestrojka, hófust í Sovétríkjunum.
- 1989 - Ranasinghe Premadasa tók við embætti sem þriðji forseti Srí Lanka.
- 1991 - Danska sjónvarpsstöðin TV Øst hóf útsendingar.
- 1991 - 327 dönsk kaupfélög („Brugser“) sameinuðust og mynduðu verslunarkeðjuna SuperBrugsen.
- 1992 - Boris Jeltsín batt enda á verðlagshöft sem leiddi til þess að verð á sumum vörutegundum margfaldaðist.
- 1993 - Borgarastyrjöldin í Srí Lanka: Her Srí Lanka drap 35-100 almenna borgara við Jaffnalón í Jaffnaumdæmi.
- 1994 - Flestir sjómenn á Íslandi fóru í verkfall, sem stóð í 14 daga, þangað til Alþingi setti bráðabirgðalög sem gerðu verkfallið ólöglegt.
- 1998 - Yfirvöld í Rússlandi gáfu út nýjar rúblur til að reyna að hemja verðbólgu í landinu.
Fædd
- 1462 - Piero di Cosimo, ítalskur málari (d. 1521).
- 1642 - Mehmet 2. Tyrkjasoldán (d. 1693).
- 1699 - Ósman 3. Tyrkjasoldán (d. 1757).
- 1822 - Rudolf Clausius, þýskur eðlis- og stærðfræðingur (d. 1888).
- 1834 - Friedrich Louis Dobermann, þýskur skattheimtumaður (d. 1894).
- 1866 - Gilbert Murray, breskur fornfræðingur (d. 1957).
- 1895 - Folke Bernadotte, sænskur aðalsmaður og erindreki (d. 1948).
- 1920 - Isaac Asimov, rithöfundur (d. 1992).
- 1920 - Nobuyuki Kato, japanskur knattspyrnumaður.
- 1941 - Björgólfur Guðmundsson, íslenskur athafnamaður.
- 1942 - Dennis Hastert, bandarískur stjórnmálamaður.
- 1967 - Jón Gnarr, íslenskur gamanleikari, borgarstjóri Reykjavíkur.
- 1967 - Basile Boli, franskur knattspyrnumaður.
- 1978 - Davit Mujiri, georgískur knattspyrnumaður.
- 1985 - Carla Juri, svissnesk leikkona.
- 1989 - Fozil Musaev, úsbekskur knattspyrnumaður.
Dáin
Mánuðir og dagar ársins |
---|
Janúar | |
---|
Febrúar | |
---|
Mars | |
---|
Apríl | |
---|
Maí | |
---|
Júní | |
---|
Júlí | |
---|
Ágúst | |
---|
September | |
---|
Október | |
---|
Nóvember | |
---|
Desember | |
---|
Tengt efni | |
---|
|
|