30. desember
30. desember er 364. dagur ársins (365. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 1 dagur er eftir af árinu.
Atburðir
- 1301 - Mikill jarðskjálfti á Suðurlandi. Hús féllu, einkum á Rangárvöllum.
- 1352 - Stefano Aubert varð Innósentíus 6. páfi.
- 1460 - Rósastríðin: Orrustan við Wakefield. Ríkharður hertogi af York féll þar og næstelsti sonur hans, jarlinn af Rutland, var tekinn af lífi eftir bardagann.
- 1880 - Svo hörð og langvarandi frost voru á Íslandi, að gengið var á ís frá Reykjavík og upp á Kjalarnes.
- 1880 - Lýðveldið Transvaal var endurreist og Paul Kruger varð forseti þess.
- 1883 - Fyrstu kirkjuhljómleikar á Íslandi voru haldnir í dómkirkjunni í Reykjavík.
- 1887 - Bríet Bjarnhéðinsdóttir flutti fyrst kvenna á Íslandi opinberan fyrirlestur í Góðtemplarahúsinu í Reykjavík sem nefndist „Fyrirlestur um hagi og rjettindi kvenna“.
- 1922 - Ríkin Rússland, Hvíta-Rússland, Úkraína og Suður-Kákasus mynduðu Sovétríkin.
- 1924 - Edwin Hubble tilkynnti um uppgötvun annarra stjörnuþoka.
- 1935 - Eldur kom upp á jólatrésskemmtun í samkomuhúsinu Skildi í Keflavík og fórust tíu manns.
- 1947 - Mikael Rúmeníukonungur sagði af sér.
- 1954 - Flugfreyjufélag Íslands var stofnað.
- 1970 - Um 15.000 manns lögðu niður vinnu í Baskalandi til að mótmæla dómnum í Burgos-réttarhöldunum.
- 1980 - Patrick Gervasoni, frönskum manni, sem sagður var landflótta, var vísað af landi brott eftir miklar deilur.
- 1993 - Vatíkanið og Ísrael tóku upp stjórnmálasamband.
- 1995 - Lægsti hiti sem mælst hefur í Bretlandi, −27.2 °C, mældist í Altnaharra í Skosku hálöndunum.
- 1996 - Aðskilnaðarsinnar Bodoa í Assam gerðu sprengjuárás á farþegalest með þeim afleiðingum að 26 létust.
- 1997 - Um 400 íbúar 4 þorpa voru myrtir í Relizane-fjöldamorðunum í Alsír.
Fædd
- 39 - Títus, keisari Rómar (d. 81).
- 1673 - Akmeð 3. Tyrkjasoldán (d. 1736).
- 1786 - Bjarni Thorarensen amtmaður (d. 1841).
- 1838 - Émile Loubet, forseti Frakklands (d. 1929).
- 1865 - Rudyard Kipling, enskur rithöfundur (d. 1936).
- 1884 - Hideki Tojo, forsætisráðherra Japans (d. 1948).
- 1910 - Paul Bowles, bandarískur rithöfundur (d. 1999).
- 1921 - J.L. Ackrill, enskur fornfræðingur og heimspekingur (d. 2007).
- 1926 - Adda Bára Sigfúsdóttir, íslenskur veðurfræðingur og stjórnmálamaður.
- 1928 - Stefán Aðalsteinsson, íslenskur búfræðingur (d. 2009).
- 1932 - Paolo Villaggio, ítalskur leikari (d. 2017).
- 1935 - Omar Bongo, forseti Gabon (d. 2009).
- 1942 - Anne Charleston, áströlsk leikkona.
- 1942 - Michael Nesmith, bandarískur tónlistarmaður.
- 1946 - Patti Smith, bandarísk tónlistarkona.
- 1947 - Jeff Lynne, tónlistarmaður (The Move, Electric Light Orchestra, Traveling Wilburys).
- 1950 - Kazuhisa Kono, japanskur knattspyrnumaður.
- 1954 - Björn Ingimarsson, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1958 - Óðinn Gunnarsson, útgerðarmaður á Siglufirði.
- 1961 - Ben Johnson, kanadískur frjálsíþróttamaður.
- 1963 - Mike Pompeo, bandarískur stjórnmálamaður.
- 1966 - Bjarni móhíkani, tónlistarmaður (d. 2005).
- 1968 - Meredith Monroe, bandarísk leikkona.
- 1969 - Kersti Kaljulaid, forseti Eistlands.
- 1970 - María Pálsdóttir, íslensk leikkona.
- 1971 - Chris Vance, enskur leikari.
- 1973 - Ato Boldon, frjálsíþróttamaður frá Trínidad og Tóbagó
- 1975 - Tiger Woods, bandarískur golfíþróttamaður.
- 1975 - Elsa Lára Arnardóttir, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1975 - Haukur Gröndal, íslenskur tónlistarmaður.
- 1977 - Kazuyuki Toda, japanskur knattspyrnumaður.
- 1982 - Erna Björk Sigurðardóttir, íslensk knattspyrnukona.
- 1984 - LeBron James, bandarískur NBA körfuboltamaður.
- 1986 - Ellie Goulding, bresk söngkona.
- 1988 - Rakel Hönnudóttir, íslensk knattspyrnukona.
- 1989 - Ryan Sheckler, bandarískur atvinnuhjólabrettamaður.
Dáin
- 274 - Felix 1. páfi.
- 904 - Harun ibn Khumarawayh, emír Egyptalands.
- 1313 - Loðmundur, ábóti í Þykkvabæjarklaustri.
- 1331 - Bernardo Gui, rannsóknardómari og persóna í Nafni rósarinnar eftir Umberto Eco (f. 1261 eða 1262).
- 1460 - Ríkharður hertogi af York (f. 1411).
- 1525 - Jakob Fugger, þýskur bankamaður (f. 1459).
- 1573 - Giovanni Battista Giraldi, ítalskur rithöfundur og ljóðskáld (f. 1504).
- 1591 - Innósentíus 9. páfi.
- 1691 - Robert Boyle, írskur efnafræðingur (f. 1627).
- 1916 - Raspútín, rússneskur heilari (f. 1869).
- 1916 - Magnús Hj. Magnússon, íslenskt skáld (f. 1873).
- 1934 - Lárus H. Bjarnason, íslenskur stjórnmálamaður (f. 1866).
- 1941 - Maggi Júlíusson Magnús, læknir og búfjárræktaráhugamaður (f. 1886).
- 1944 - Romain Rolland, franskur rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi (f. 1866).
- 1947 - Alfred North Whitehead, enskur stærðfræðingur (f. 1861).
- 1968 - Trygve Lie, aðalritari Sameinuðu þjóðanna (f. 1896).
- 1982 - Reynir Örn Leósson, íslenskur aflraunamaður (f. 1939).
- 2006 - Saddam Hussein, forseti Íraks (f. 1937).
- 2010 - Thomas Funck, sænskur rithöfundur (f. 1919).
- 2012 - Rita Levi-Montalcini, ítalskur taugalíffræðingur og nóbelsverðlaunahafi (f. 1909).
Mánuðir og dagar ársins |
---|
Janúar | |
---|
Febrúar | |
---|
Mars | |
---|
Apríl | |
---|
Maí | |
---|
Júní | |
---|
Júlí | |
---|
Ágúst | |
---|
September | |
---|
Október | |
---|
Nóvember | |
---|
Desember | |
---|
Tengt efni | |
---|
|
|