24. mars
24. mars er 83. dagur ársins (84. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 282 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir
- 1084 - Wiberto varð Klemens 3. mótpáfi.
- 1208 - Innósentíus 3. setti England í bann þar sem Jóhann konungur hafði neitað að fara að óskum páfa varðandi útnefningu á nýjum erkibiskupi af Kantaraborg.
- 1401 - Timur Lenk, höfðingi Mongóla, lagði undir sig Damaskus.
- 1548 - Gissur Einarsson biskup í Skálholti lést. Hann var fyrsti lútherski biskupinn á Íslandi.
- 1603 - Jakob 6. Skotakonungur varð jafnframt Jakob 1. Englandskonungur og var þar með komið á konungssambandi á milli landanna tveggja.
- 1609 - Pólsk-litháíska samveldið sigraði flota Svía í orrusunni við Salis.
- 1663 - Karl 2. Englandskonungur gerði Karólínu að nýlendu.
- 1703 - Þórdís Jónsdóttir í Bræðratungu flúði undan barsmíðum Magnúsar Sigurðssonar, manns síns. Hann taldi hana eiga í ástarsambandi við Árna Magnússon.
- 1882 - Grein Robert Koch, þar sem hann lýsti berklabakteríunni Mycobacterium tuberculosis í fyrsta skipti, kom út.
- 1931 - Fluglínutæki voru notuð í fyrsta skipti til björgunar á Íslandi. Slysavarnadeildin Þorbjörn bjargaði 38 manna áhöfn franska togarans Cap Fagnet frá Fécamp þegar hann strandaði í slæmu veðri við bæinn Hraun austan Grindavíkur aðfaranótt 24. mars.
- 1958 - Sád, konungur Sádí-Arabíu, veitti Faisal bróður sínum aukin völd til þess að stemma stigu við versnandi afkomu ríkisins.
- 1958 - Elvis Presley sinnti herkvaðningu og varð óbreyttur hermaður númer 53310761.
- 1959 - Reglugerð var sett um stefnuljós á bifreiðum og önnur um umferðarmerki á Íslandi.
- 1972 - Kvikmyndin Guðfaðirinn var frumsýnd í Bandaríkjunum.
- 1972 - Breska ríkisstjórnin hóf beina stjórn Norður-Írlands.
- 1973 - Kjarvalsstaðir á Miklatúni í Reykjavík voru formlega opnaðir með stórri sýningu á verkum Jóhannesar S. Kjarvals listmálara.
- 1973 - Hljómplata Pink Floyd, Dark Side of the Moon, kom út í Bretlandi.
- 1974 - Varðskipið Týr kom til landsins.
- 1976 - Argentínski herinn steypti Ísabellu Perón af stóli.
- 1986 - Fyrsta plata Pet Shop Boys, Please, kom út.
- 1987 - Albert Guðmundsson iðnaðarráðherra var sakaður um að vantelja greiðslur til sín frá Hafskipum og sagði af sér þess vegna. Eftir það stofnaði hann Borgaraflokkinn, sem náði nokkru fylgi í kosningum mánuði síðar.
- 1987 - Michael Eisner og Jacques Chirac undirrituðu samkomulag um byggingu Euro Disney (nú Disneyland Paris).
- 1988 - Fyrsti McDonald's-veitingastaðurinn var opnaður í Belgrad í Júgóslavíu.
- 1988 - Mordechai Vanunu var dæmdur í 18 ára fangelsi fyrir að hafa afhjúpað kjarnavopnaáætlun Ísraels.
- 1989 - Exxon Valdez-olíulekinn átti sér stað úti fyrir ströndum Alaska.
- 1992 - Samningur um opna lofthelgi var undirritaður í Helsinki.
- 1995 - Í fyrsta sinn í 26 ár voru engir breskir hermenn á verði á götum Belfast á Norður-Írlandi.
- 1996 - Marcopper-námaslysið átti sér stað á eyjunni Marinduque á Filippseyjum.
- 1998 - Mitchell Johnson og Andrew Golden skutu fjóra nemendur og einn kennara til bana í miðskóla í Jonesboro í Arkansas.
- 1999 - Kosóvóstríðið: NATO varpaði sprengjum á skotmörk í Júgóslavíu. Þetta var í fyrsta sinn sem NATO réðist á fullvalda ríki.
Fædd
- 1607 - Michiel de Ruyter, hollenskur flotaforingi (d. 1676).
- 1834 - William Morris, enskur textílhönnuður (d. 1896).
- 1855 - Andrew W. Mellon, bandarískur iðnjöfur (d. 1937).
- 1874 - Luigi Einaudi, ítalskur hagfræðingur (d. 1961).
- 1874 - Harry Houdini, ungversk-amerískur töframaður (d. 1926).
- 1906 - Gísli Ásmundsson, íslenskur þýðandi (d. 1990).
- 1909 - Adalbert Deșu, rúmenskur knattsyrnumaður (d. 1937).
- 1910 - Clyde Barrow, bandarískur glæpamaður (d. 1934).
- 1926 - Dario Fo, ítalskur rithöfundur (d. 2016).
- 1933 - Shigeo Yaegashi, japanskur knattspyrnumaður (d. 2011).
- 1944 - R. Lee Ermey, bandarískur leikari (d. 2018).
- 1970 - Lara Flynn Boyle, bandarísk leikkona.
- 1972 - Tony Leondis, bandarískur leikstjóri.
- 1973 - Steve Corica, ástralskur knattspyrnumaður.
- 1974 - Alyson Hannigan, bandarísk leikkona.
- 1976 - Róbert Ragnarsson, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1978 - Bertrand Gille, franskur handknattleiksmaður.
- 1982 - Bryndís Björgvinsdóttir, íslenskur rithöfundur.
- 1983 - Þórhallur Þórhallsson, íslenskur uppistandari.
- 1984 - Jungo Fujimoto, japanskur knattspyrnumaður.
- 1990 - Yuki Otsu, japanskur knattspyrnumaður.
Dáin
- 809 – Harún Alrasjid, kalífi Abbasída
- 1284 - Húgó 3. Kýpurkonungur.
- 1287 - Ingibjörg Eiríksdóttir, drottning Noregs, kona Magnúsar lagabætis (f. um 1244).
- 1381 - Heilög Katrín frá Vadstena, sænskur dýrlingur.
- 1455 - Nikulás 5. páfi (f. 1397).
- 1603 - Elísabet 1. Englandsdrottning (f. 1533).
- 1653 - Samuel Scheidt, þýskt tónskáld (f. 1587).
- 1684 - Pieter de Hooch, hollenskur listmálari (f. 1629).
- 1720 - Johan Peringskiöld, sænskur fornfræðingur (f. 1654).
- 1844 - Bertel Thorvaldsen, dansk-íslenskur myndhöggvari (f. 1770).
- 1905 - Jules Verne, franskur rithöfundur (f. 1828).
- 1938 - Jørgen-Frantz Jacobsen, færeyskur rithöfundur (f. 1900).
- 1946 - Ingi T. Lárusson, íslenskt tónskáld (f. 1892).
- 1979 - Ole Lund Kirkegaard, danskur rithöfundur (f. 1940).
- 2016 - Johan Cruyff, hollenskur knattspyrnumaður (f. 1947).
- 2016 - Garry Shandling, bandarískur leikari (f. 1949).
- 2020 - Albert Uderzo, franskur myndasöguhöfundur (f. 1927).
Mánuðir og dagar ársins |
---|
Janúar | |
---|
Febrúar | |
---|
Mars | |
---|
Apríl | |
---|
Maí | |
---|
Júní | |
---|
Júlí | |
---|
Ágúst | |
---|
September | |
---|
Október | |
---|
Nóvember | |
---|
Desember | |
---|
Tengt efni | |
---|
|
|