Share to: share facebook share twitter share wa share telegram print page

Reyðarfjörður

Reyðarfjörður
Byggðin á Reyðarfirði
Byggðin á Reyðarfirði
Map
Reyðarfjörður er staðsett á Íslandi
Reyðarfjörður
Reyðarfjörður
Staðsetning Reyðarfjarðar
Hnit: 65°1′57″N 14°13′12″V / 65.03250°N 14.22000°V / 65.03250; -14.22000
LandÍsland
LandshlutiAusturland
KjördæmiNorðaustur
SveitarfélagFjarðabyggð
Mannfjöldi
 (2024)[1]
 • Samtals1.368
Heiti íbúaReyðfirðingar[2]
Póstnúmer
730
Vefsíðafjardabyggd.is
Reyðarfjörður

Reyðarfjörður er kaupstaður á Austfjörðum og dregur nafn sitt af samnefndum firði. Þorpið hét upphaflega Búðareyri, en er nú kallaður Reyðarfjörður. Árið 2024 var íbúafjöldi 1.368 (Hagstofa). Reyðarfjörður er hluti af sveitarfélaginu Fjarðabyggð og er miðkjarni sveitarfélagsins. Bæjarskrifstofur Fjarðabyggðar eru staðsettar á Reyðarfirði. Hafnaraðstaða er mjög góð í firðinum frá náttúrunnar hendi. Álver Alcoa-Fjarðaráls er í firðinum.

Í bænum er íþróttafélagið Valur sem hefur náð hvað bestum árangri í glímu. Fjarðabyggð er með sameiginlegt lið í 2. deild karla í knattspyrnu. Þar er einnig golfvöllur Golfklúbbs Fjarðabyggðar sem nefnist Kollur og er staðsettur í hlíðinni rétt innan við bæinn á Reyðarfirði. Í bænum er Lúðrasveit Eskifjarðar og Reyðarfjarðar.

Stutt er í næstu byggðarkjarna; 13km á Eskifjörð, þar sem keyrt er yfir Hólmaháls; 18km á Fáskrúðsfjörð ef keyrt er í gegnum Fáskrúðsfjarðargöngin, sem voru tekin í notkun árið 2005; og 32km í Egilsstaði.

Tilvísanir

  1. „Mannfjöldi eftir byggðakjörnum, kyni og aldri 1. janúar 1998-2024“. px.hagstofa.is.
  2. „Reyðfirðingar“. Málfarsbankinn.

Tenglar

  Þessi Íslandsgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
Prefix: a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9

Portal di Ensiklopedia Dunia

Kembali kehalaman sebelumnya