Peterborough liggur á sléttu landssvæði og nokkrir punktar í borginni eru fyrir neðan sjávarmálið. Svæðið sem heitir „the Fens“ á ensku liggur austurlega. Peterborough liggur að Northamptonshire og Rutland í vestri, Lincolnshire í norðri og Cambridgeshire í suðri og austri.
Söguágrip
Mannabyggð á svæðinu hófst fyrir löngu, áður en bronsöldin hófst. Það eru sönnunargögn til þess sem má sjást á Flag Fen fornleifasvæðinu sem liggur eystra. Á þessu svæði má líka finna rómverskar rústir og fornminjar. Við komu Engilsaxa var klaustur stofnað, sem hét á þessum tíma Medeshamstede. Það heitir Dómkirkjan í Peterborough nú á dögum. Á 19. öld stækkaði íbúatala mikið við byggingu járnbrauta og Peterborough varð iðnaðarmiðstöð. Á þessum tíma var borgin sérstaklega þekkt fyrir framleiðslu múrsteina.
Upp úr seinni heimsstyrjöldinni var stækkun borgarinnar takmarkuð þar til hún varð New Town í sjöunda áratugnum. Íbúum fjölgar aftur og miðborgin er núna í endurreisn. Eins og í öðrum borgum á Bretlandi hefur iðnaðarstörfum fækkað vegna nýrra fjármála- og útdreifingarstarfa.