Joseph Brodsky (eða Jósef Brodsky) (24. maí1940 - 28. janúar1996) fæddur Josíf Aleksandrovítsj Brodskíj eða Ио́сиф Алекса́ндрович Бро́дский, var rússnesktskáld, leikrita- og ritgerðarhöfundur. Joseph Brodsky fæddist í Leningrad (nú Sankti Pétursborg) í Rússlandi en fluttist til Bandaríkjanna eftir að hafa verið gerður útlægur úr Sovétríkjunum. Hann öðlaðist bandarískan ríkisborgararétt 1977. Hann fékk aldrei að hitta foreldra sína aftur, og tileinkaði þeim ritgerðarsafnið Less Than One.