Bosnía og Hersegóvína (serbó-króatíska: Bosna i Hercegovina/Босна и Херцеговина) er fjalllent land á vestanverðum Balkanskaga í Suðaustur-Evrópu. Höfuðborg landsins heitir Sarajevó. Landið liggur að Króatíu í norðri og vestri og Serbíu í austri og Svartfjallalandi í suðri, auk þess liggur landið að Adríahafi á örstuttum kafla í suðvestri. Nafn landsins er samansett úr nöfnum héraðanna Bosníu og Hersegóvínu, sem mynda landið. Norðurhlutinn, Bosnía, býr við milt meginlandsloftslag með heitum sumrum og köldum vetrum. Mið- og austurhéruðin eru fjalllend. Hersegóvína í suðri býr við miðjarðarhafsloftslag og er fjalllent hérað.
Þing Bosníu situr í tveimur deildum. Landið er með þrjá forseta, einn frá hverju þjóðarbroti. Miðstjórnarvaldið er mjög takmarkað þar sem stjórn landsins er dreifð. Í landinu eru tvö sjálfstjórnarhéruð, sambandslýðveldið Bosnía-Hersegóvína og lýðveldi Bosníu-Serba, og Brčko-umdæmi sem lýtur eigin stjórn. Sambandslýðveldið Bosnía-Hersegóvína skiptist í 10 kantónur.
Í byrjun 20. aldar þegar Austurríki-Ungverjaland innlimaði Bosníu, voru hrottalegir glæpir framkvæmdir á Serbum af Austurríkismönnum, Króötum og Bosníu-Múslimum, sem sáu Austurríkismenn sem sína bandamenn. Schutzkorps var áætlun Austurríkismanna til þjóðernishreinsa Serba úr Bosníu með aðstoð Króata og Bosníu-Múslima. Í síðari heimsstyrjöldinnii voru Bosníu-Múslímar og Króatar bandmenn Þjóðverja, sem höfðu einnig það markmið að þjóðernishreinsa Serba úr Bosníu og Króatíu. Margir Serbar frá Bosníu voru lentu í Jasenovac útrýmingarbúðum í Króatíu, stundum kallaðar Auschwitz Balkanskagans, en þar létust um það bil 600.000-700.000 Serbar og Roma fólk.
Í kjölfar sjálfstæðisyfirlýsingarinnar Bosníu-Hersegóvinu árið 1992 frá Júgóslavíu var Bosníu-serbneskur brúðgumi myrtur í Sarajevo 1. mars árið 1992. Talið er að þessi atburður hafi komið af stað stríði í Bosníu-Hersegóvinu. Serbar vildu ekki tilheyra Bosníu-Hersegóvinu undir stjórn Bosníu-Múslima og Króata í kjölfar sögunnar og vildu fá að ráða yfir því svæði þar sem þeir voru í meirihluta eða sameinst Serbíu.
Til að koma í veg fyrir stríð, var Lisabon-samningurinn undirritaður 3. mars árið 1992 af leiðtogum Bosníu-Múslíma, Serba og Króata. Samþykkt var að Bosnía-Hersegóvína myndi vera Sambandssríki og að Serbar fengu yfirráðasvæði sem þeir óskuðu eftir, serbneska lýðveldið. Alija Izetbegovic, leiðtogi Bosníu-Múslíma dróg til baka undirskrift sína 28.mars árið 1992 eftir fund með bandaríska sendiherranum, Warren Zimmermanmn. Stuttu eftir braust út hrottaleg borgarastyrjöld á milli Serba, Króata og Bosníu-Múslíma. Bosníu-Múslímska ríkisstjórnin og bosníski herinn gaf sér tilkall til þess ráða yfir allri Bosníu og fengu aðstoð frá Mujahideen-múslímum, Króatar fengu aðtoð frá Króatíu og króatíska hernum og Serbar frá Serbíu og serbneska hernum.
Stríðið snérist um það að serbar vildu ekki búa í ríki undir forystu Bosníu-Múslíma sem þeir litu á sem óvini sína í ljósi sögunnar og einnig sem helstu bandamenn Tyrkja, en Serbar voru kúgaðir undir stjórn Ottoman-Tyrkja í rúm 500 ár.
Í stríðinu voru framdi hrottalegir stríðsglæpir, glæpir gegn mannkyni og þjóðarmorð eins og í Srebrenica þar sem að um það bil 8000 karlkyns hermenn voru myrtir af serbneska hernum. Lögfræðingar og fræðimenn hafa árum saman verið að deila um það hvort að atburðurinn í Srebrenica sé þjóðarmorð eða stríðsglæpur. Serbnesk þorp í Srebrenica og þorp í kringum Srebrenica höfðu verið brennd niður af bosníska hernum sama ár og þjóðernishreinsað Serba. Mikil átök voru meðal Króata og Bosníu-Múslíma í Mostar, þar sem Króatar sprengdu þekktu Ottoman-brúnna í borginni.
Í lok stríðsins höfðu yfir 100 þúsund manns verið myrtir og meira en tvær milljónir þurft að flýja heimili sín, þar af um ein milljón úr landi. Ísland var eitt af þeim ríkjum sem tók við flóttamönnum frá Bosníu, aðallega Serbum og Bosníu-Múslímum.
21. nóvember1995 hittust forsetar Bosníu og Hersegóvínu, Króatíu og Serbíu í Dayton, í Ohio í Bandaríkjunum og skrifuðu undir friðarsamning, sem átti að stöðva bardagana í Bosníu og Hersegóvínu í þrjú ár. Lokasamningurinn var undirritaður í París14. desember1995. Samningurinn var kallaður Dayton-samningurinn og með honum tókst að binda enda á blóðbaðið í Bosníu og Hersegóvínu. Í stjórnarskrá landsins var því skipt í tvö ríkjasambönd, á milli Bosníumanna og Bosníu-Króata annars vegar, og yfirráðasvæði Bosníu-Serba hinsvegar, Serbneska lýðveldið. Samningurinn var mjög svipaður Lisabon-samningnum frá árinu 1992.
Í dag búa fleiri Bosníu-Múslimar í serbneska lýðveldinu í Bosníu heldur en Serbar í bosníska-sambandsríkinu. Bosníu-Múslímar líta hinsvegar á Sarajevo sem höfuðborg sína, enda er mikill meiri hluti íbúanna bosnískur á meðan að Serbar líta á Banja Luka sem höfuðborg sína. Króatar hafna yfirráðum Bosníu-Múslíma í bosníska sambandssríkinu og hafa undanfarið krafist þess að fá króatískt sérstjórnarhérað í Hersegóvinu líkt og serbar eru með, sem þeir kalla Herceg-Bosna og líta á Mostar sem höfuðborg sína.
Íbúar
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu.
Tölfræði þjóðernishópa Bosníu-Hersegóvinu frá 1948-2013.
↑„Membership Action Plan (MAP)“. nato.int. NATO. Afrit af upprunalegu geymt þann 18. apríl 2015. Sótt 6. apríl 2015. „In April 2010, when the foreign ministers of NATO member countries met in Tallinn, after reviewing the progress that Bosnia and Herzegovina had made in its reform efforts, they invited the country to join the Membership Action Plan.“