Önnur ríkisstjórn Geirs H. Haarde var ríkisstjórn Íslands ríkisstjórn Íslands frá 24. maí 2007 til 1. febrúar 2009. Í henni sátu ráðherrar frá Sjálfstæðisflokki og Samfylkingunni. Hún tók við völdum 24. maí2007 í kjölfar þess að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur ákváðu að slíta samstarfi sínu vegna naums þingmeirihluta eftir Alþingiskosningarnar 2007. Ríkisstjórnin hafði einn rúmasta meirihluta sem ríkisstjórn hefur haft á Alþingi, 43 menn en einungis 20 þingmenn voru í stjórnarandstöðu.
Stór hluti viðræðnanna í aðdraganda stjórnarmyndunarinnar fór fram á Þingvöllum og þar undirrituðu formenn stjórnarflokkana jafnframt stjórnarsáttmálann 23. maí2007. Þess vegna hefur stjórnin verið kölluð Þingvallastjórnin.