Þórunn Sveinbjarnardóttir (f. 22. nóvember 1965 í Reykjavík) er alþingismaður Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi og núverandi forseti Alþingis. Hún er jafnframt fyrrverandi umhverfisráðherra.
Þórunn var fyrst kosin á þing fyrir Samfylkinguna árið 1999 og sat á þingi til ársins 2011. Árið 2021 snéri hún aftur í pólitíkina og var kosin á þing í alþingiskosningunum sama ár.
Þórunn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1984 og BA-gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 1989. Hún stundaði framhaldsnám við Johns Hopkins University, Paul H. Nitze School of Advanced International Studies og lauk námi í alþjóðastjórnmálafræði árið 1990. Þórunn var framkvæmdastjóri Samtaka um kvennalista á árunum 1992-1995. Hún hefur einnig gegnt ýmsum störfum fyrir Rauða krossinn, bæði á Íslandi og á alþjóðavettvangi. Hún var annar tveggja kosningastjóra Reykjavíkurlistans fyrir borgarstjórnarkosningarnar árið 1998 og starfaði sem blaðamaður á Morgunblaðinu frá 1998-1999. Hún var kosin á þing fyrir Samfylkinguna árið 1999 og var þingmaður til ársins 2011.[1] Hún var umhverfisráðherra í ríkisstjórn Geirs H. Haarde frá 2007-2009. Eftir að hún lét af þingmennsku starfaði hún m.a. sem aðstoðarmaður Árna Páls Árnasonar formanns Samfylkingarinnar og síðar sem framkvæmdastjóri flokksins.[2] Frá árinu 2015-2021 var hún formaður Bandalags háskólamanna.[3]