Ketildalir er röð af stuttum dölum á suðurströnd Arnarfjarðar, frá Kópsnesi inn að Bíldudalsvogi. Þverhníptir fjallgarðar mynda dalina sem eru umkringdir klettabeltum efst, og niður af þeim falla snarbrattar skriður og víða teygja fjöllin sig þverbrotin í sjó fram. Fjöllin ná flest 500 til 600 metra hæð en hæst þeirra er Hringdalsnúpur 625 metrar.
Víða má finna surtarbrand og plöntusteingervinga í fjöllunum í Ketildölum, inn á milli blágrýtishraunlaganna. Hér hafa fundist leifar af beyki, vínviði, rauðviði, álmi og fleiri tegundum. Sandsteinslagið er meðal elstu minja um gróðurfar hérlendis á tertíertímabilinu.
Ystir Ketildala eru Verdalir, en þar var lengi mikil verstöð, en aldrei byggð. Þar á eftir kemur Selárdalur, og svo: Fífustaðadalur, Austmannsdalur, Bakkadalur, Hringsdalur, Hvestudalur og Auðihringsdalur. Lengi var fjölmenn byggð í Ketildölum en nú eru nær allir bæir komnir í eyði.
Kirkja og prestssetur var í Selárdal, en árið 1907 var Selárdalsprestakall lagt niður og Selárdalssókn lögð til Bíldudalsprestakalls.
Ketildalir voru sérstakt sveitarfélag, Ketildalahreppur, en var lagt niður 1987 þegar það sameinaðist Suðurfjarðahreppi og hrepparnir mynduðu í sameiningu Bíldudalshrepp. Árið 1994 sameinaðist hann Barðastrandarhreppi, Rauðasandshreppi og Patrekshreppi í sveitarfélagið Vesturbyggð.
Ketildalir eru sagðir heita eftir Katli Þorbjarnarsyni ilbreið en í Landnámu segir að hann hafi numið Arnarfjarðardali frá Kópanesi til Dufansdals.
Bæir
Auðihrísdalur
Hvestudalur
Hringsdalur
Bakkadalur
Austmannsdalur
Fífustaðadalur
Selárdalur
Tengt efni
Tenglar