HTML: .htm, .html XHTML: .xhtml, .xht, .xml
HTML: text/htmlXHTML: application/xhtml+xml, application/xml
HTML5 er ívafsmál fyrir vefsíður. HTML5 var síðasta opinbera útgáfa HTML frá samtökunum W3C og kom út í október 2014. Hugmyndin var að það minnkaði þörfina fyrir íforrit sem voru notuð til að skila ákveðinni tegund af margmiðlun, eins og Adobe Flash, Microsoft Silverlight og Sun JavaFX. Þannig víkkaði staðallinn út notkunarmöguleika skjalalíkansins og skriftumála og bætir við nýjum forritunarviðmótum á borð við skilgreint svæði fyrir tvívíða teikningu (<canvas>), afspilun kvikmynda og hljóðs (<video>, <audio>) og margt fleira.
<canvas>
<video>, <audio>
Ætlunin var að HTML5 yrði að W3C-tilmælum síðla árs 2010 en mikill dráttur varð á vinnslu þess. Stuðningur vafra við HTML5 var lengi takmarkaður en það breyttist þegar aðgerðasafnið WebKit, sem meðal annars er notað í vafranum Safari, útfærði meiri stuðning en áður hafði þekkst árið 2007. Í kjölfarið ákvað Apple Inc. að sleppa stuðningi við Adobe Flash í bæði iPhone og iPad. Þetta skapaði aukinn þrýsting á að útfæra margmiðlun á vefsíðum með HTML5 í stað Flash.
Vegna þess hve langan tíma tók að ljúka við HTML5 hófu grasrótarsamtökin WHATWG (upphaflega póstlisti forritara frá sumum af stærstu fyrirtækjum bandaríska tæknigeirans) að þróa HTML á eigin spýtur. Samtökin voru stofnuð eftir að sameiginlegri tillögu frá þróunaraðilum vafranna Opera og Mozilla var hafnað af W3C árið 2004. Árið 2019 lét W3C WHATWG þróun HTML eftir, þar sem samtökin töldu að tveir aðskildir staðlar væru skaðlegir. Síðasta uppfærsla HTML5 kom út árið 2017 og þróun staðalsins var hætt 2018.
article
aside
audio
bdo
canvas
command
datalist
details
embed
figcaption
figure
footer
header
hgroup
keygen
mark
meter
nav
output
progress
rp
rt
ruby
section
source
summary
time
video
wbr
dates and times
email
url
search
number
range
tel
color
charset
meta
async
script
id
tabindex
hidden
data-*
acronym
applet
basefont
big
center
dir
font
frame
frameset
isindex
noframes
strike
tt