Sanna Magdalena Mörtudóttir er íslensk-tansanísk stjórnmálakona, leiðtogi Sósíalistaflokks Íslands og borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur frá 2018. Hún náði kjöri í borgarstjórn sem oddviti Sósíalistaflokksins í sveitarstjórnarkosningum landsins árið 2018, þá 26 ára gömul, og varð þá yngsti borgarfulltrúi í sögu Reykjavíkur.[1]
Sanna er fædd í Reykjavík. Móðir hennar er íslensk en faðir hennar tansanískur. Foreldrar hennar hittust í Englandi og Sanna ólst upp í London fyrstu árin.[2] Þegar hún var sjö ára flutti hún með móður sinni til Reykjavíkur, þar sem hún ólst upp.[2]
Sanna er með MA-gráðu í mannfræði frá Háskóla Íslands.[2][3]
Sanna náði kjöri í borgarstjórn Reykjavíkur sem oddviti Sósíalistaflokksins í sveitarstjórnarkosningum landsins árið 2018, þá 26 ára gömul. Þá braut hún met sem yngsti borgarfulltrúi í sögu Reykjavíkur.[1] Í stjórnmálum hefur hún lagt stund á mál sem tengjast jafnrétti og velferð.
Árið 2024 var hún kjörin leiðtogi Sósíalistaflokksins og hún leiddi lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður í alþingiskosningunum 2024.[4]
Eftir að meirihlutinn í borgarstjórninni sprakk tóku Sósíalistar þátt í myndun nýs meirihluta með Samfylkingu, Vinstri grænum, Pírötum og Flokki fólksins. Sanna varð forseti borgarstjórnar við stofnun nýja meirihlutans þann 21. febrúar 2025.[5]