Magnesín [ 1] [ 2] [ 3] stundum kallað magnín ,[ 1] magníum ,[ 2] eða magnesíum [ 4] [ 2] [ 3] [ 5] [ 6] (úr latínu : magnesium eftir gríska héraðinu Magnesíu ; orðin magnesít og mangan eru af sömu rót) er frumefni með efnatáknið Mg og er númer tólf í lotukerfinu . Magnesín er áttunda algengasta frumefnið og myndar 2% af jarðskorpunni . Það er líka þriðja algengasta uppleysta efnið í sjónum . Þessi jarðalkalímálmur er aðallega notaður sem blendingsefni í ál-magnesín málmblöndur.
Magnesín er ellefti algengasti málmurinn í mannslíkamanum . Magnesínjónir eru nauðsynlegar frumum þar sem þær leika stórt hlutverk við myndun pólýfosfata á borð við adenósín þrífosfat (ATP), deoxýríbósakjarnsýru (DNA) og ríbósakjarnsýru (RNA). Hundruð ensíma þurfa því á magnesínjónum að halda. Magnesín er líka í miðju blaðgrænusameinda og er því oft bætt í áburð .
Magnesín finnst ekki hreint í náttúrunni vegna þess hve auðveldlega það hvarfast við loft og vatn . Það brennur með björtum hvítum loga og er þess vegna notað í leifturljós .
Tilvísanir
↑ 1,0 1,1 Orðið „magnesín“ á Orðabanka íslenskrar málstöðvar úr orðasafninu „Eðlisfræði“:íslenska : „magnesín“, „magnín“
↑ 2,0 2,1 2,2 Orðið „magnesín“ á Orðabanka íslenskrar málstöðvar úr orðasafninu „Efnafræði“:íslenska : „magnesín“, „magníum“, „magnesíum“ „Geymd eintak“ . Afritað af uppruna á 5. mars 2016. Sótt 4. desember 2024 .
↑ 3,0 3,1 Orðið „magnesíum“ á Orðabanka íslenskrar málstöðvar
íslenska : „magnesíum“, „magnesín“
↑ „magnesíum“ . Afrit af upprunalegu geymt þann 13. ágúst 2014. Sótt 9. janúar 2011 .
↑ Orðið „magnesíum“ á Orðabanka íslenskrar málstöðvar úr orðasafninu „Sjómennsku- og vélfræðiorð“:íslenska : „magnesíum“
↑ Orðið „magnesíum“ á Orðabanka íslenskrar málstöðvar úr orðasafninu „Bílorð“:íslenska : „magnesíum“