Heiða Björg Hilmisdóttir (f. 21. febrúar1971) er íslensk stjórnmálakona. Hún var kjörin varaformaður Samfylkingarinnar í febrúar 2017[1], og er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjavík.[2]
Heiða Björg er fædd og uppalin á Akureyri en hefur búið í Reykjavík stærstan hluta ævinnar. Hún er dóttir Hilmis Helgasonar vinnuvélstjóra og Lovísu Snorradóttur sem starfaði í félagslegri heimaþjónustu. Eiginmaður Heiðu er Hrannar B. Arnarsson,[3] fyrrverandi aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra[4].[5]
Starfsferill og Menntun
Heiða Björg er varaformaður Samfylkingarinnar[6] og fyrrverandi formaður kvennahreyfingar flokksins[7]. Áður en Heiða Björg tók sæti í borgarstjórn starfaði hún sem deildarstjóri eldhúss og matsala á Landspítala. [8]Hún var varaformaður MS-félagsins,[9] fyrst varaformaður[10] og svo formaður Norræna MS-ráðsins[11], formaður Matvæla- og næringarfræðafélags Íslands [12] og er í fulltrúaráði evrópsku næringarráðgjafasamtakanna.[13] Hún hefur víða fjallað um mat og næringu í fjölmiðlum, starfað sem blaðamaður[14],[15] kennt í HÍ[16], gefið út matreiðslubókina Samlokur ásamt Bryndísi Evu Birgisdóttur[17] og samið uppskriftir fyrir bókina Af bestu lyst 4.[18]
Heiða Björg var formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar 2013 - 2016[19][20]og formaður Framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar 2016[21] Hún tók sæti í borgarstjórn haustið 2015, þegar Björk Vilhelmsdóttir hætti í stjórnmálum[22], en hún hafði verið fyrsti varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar frá kosningum 2014[23]. Heiða Björg var upphafskona þess að stjórnmálakonur sendu frá sér yfirlýsingu „Áskorun til stjórnmálanna í skugga valdsins #metoo“ þar sem 419 stjórnmálakonur skoruðu á stjórnmálin að breytast og útrýma kynbundinni áreitni, ofbeldi og misbeitingu valds innan sinna raða[24]. Fleiri hópar fylgdu svo í kjölfarið.
Heiða Björg hefur verið formaður Ofbeldisvarnarnefndar Reykjavíkur frá stofnun hennar sem samþykkt var á hátíðarfundi kvenna í borgarstjórn í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna þann 31. mars 2015[25][26] og er henni ætlað að takast á við ofbeldi í sinni víðustu mynd – öllu ofbeldi alls staðar. Heiða Björg skipaði annað sæti á lista Samfylkingarinnar í Borgarstjórnarkosningum 2018[27]og var á fundi borgarstjórnar 19. júní 2019 kosin formaður Velferðarráðs Reykjavíkur og í Borgarráð Reykjavíkur[28]. Heiða Björg var kjörin varaformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga 2018[29], hún á sæti í stjórn Félagsbústaða[30] og er varaformaður stjórnar ECAD, European Cities Action Network for Drug Free Societies[31].[32]
Heiða Björg var kjörin varaformaður Samfylkingarinnar 2017 [33]en flokkurinn var þá nýkominn úr alþingiskosningum þar sem flokkurinn fékk einungis 5,7% atkvæða[34]. Hún hefur tvívegis verið endurkjörin, fyrst 2018 [35]og svo 2020.[36]
Stjórnarstörf
Formaður stjórnar Skógarbæjar Hjúkrunarheimilis[37]