Georges Pompidou

Georges Pompidou
Forseti Frakklands
Í embætti
20. júní 1969 – 2. apríl 1974
ForsætisráðherraJacques Chaban-Delmas
Pierre Messmer
ForveriCharles de Gaulle
EftirmaðurValéry Giscard d'Estaing
Forsætisráðherra Frakklands
Í embætti
14. apríl 1962 – 10. júlí 1968
ForsetiCharles de Gaulle
ForveriMichel Debré
EftirmaðurMaurice Couve de Murville
Persónulegar upplýsingar
Fæddur5. júlí 1911
Montboudif, Frakklandi
Látinn2. apríl 1974 (62 ára) París, Frakklandi
StjórnmálaflokkurUnion des démocrates pour la République
MakiClaude Cahour (g. 1935)
BörnAlain

Georges Jean Raymond Pompidou (5. júlí 19112. apríl 1974) var forseti Frakklands frá 1969 þar til hann lést árið 1974. Hann var forsætisráðherra Frakklands í forsetatíð Charles de Gaulle frá 1962 til 1968 og vann forsetakosningarnar eftir að de Gaulle hafði sagt af sér 1969. Pompidou hafði lengi verið einn nánasti samstarfsmaður de Gaulle og þótti eðlilegur arftaki hans. Sem forseti var hann hófsamur íhaldsmaður sem bætti samskipti Frakklands við Bandaríkin og stofnaði til jákvæðra sambanda við nýsjálfstæðar fyrrum nýlendur Frakka í Afríku. Pompidou styrkti stjórnmálaflokk þeirra de Gaulle, Bandalag lýðræðissinna fyrir lýðveldið (Union des démocrates pour la République) og gerði hann að helstu hreyfingu Gaullista í Frakklandi.

Sem forseti tók Pompidou þátt í skipulagningu evrópska efnahagsbandalagsins og samþykkti aðild Bretlands að bandalaginu. De Gaulle hafði verið mjög andsnúinn því að Bretar hlytu aðild þar sem hann taldi þá of nána Bandaríkjamönnum, og hafði sem forseti beitt neitunarvaldi sínu gegn samþykkt á aðild þeirra.

Pompidou var þekktur fyrir dálæti sitt á nútímalist. Hann stóð fyrir byggingu ýmissa nýtískulegra mannvirkja í París, þar á meðal Pompidou-safnsins, sem var nefnt eftir honum eftir dauða hans.

Tenglar

  • „Georges Pompidou“. Lesbók Morgunblaðsins. 19. september 1965. bls. 2; 11.


Fyrirrennari:
Michel Debré
Forsætisráðherra Frakklands
(20. júní 196210. júlí 1968)
Eftirmaður:
Maurice Couve de Murville
Fyrirrennari:
Charles de Gaulle
Forseti Frakklands
(20. júní 19692. apríl 1974)
Eftirmaður:
Valéry Giscard d'Estaing


  Þessi Frakklandsgrein sem tengist stjórnmálum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Strategi Solo vs Squad di Free Fire: Cara Menang Mudah!