Boutros Boutros-Ghali (بطرس بطرس غالي á arabísku) (14. nóvember 1922 – 16. febrúar 2016) var egypskur stjórnmálamaður og erindreki sem var aðalritari Sameinuðu þjóðanna frá janúar 1992 til desember 1996. Boutros-Ghali var menntamaður og fyrrverandi varautanríkisráðherra Egyptalands. Á meðan hann gegndi aðalritaraembættinu þurftu Sameinuðu þjóðirnar að bregðast við ýmsum hamförum, þar á meðal upplausn Júgóslavíu og þjóðarmorðinu í Rúanda. Boutros-Ghali er eini aðalritari Sameinuðu þjóðanna sem sat aðeins eitt kjörtímabil í embætti þar sem Bandaríkin beittu neitunarvaldi sínu gegn útnefningu hans í annað sinn.[1] Eftir að hann lét af embættinu gerðist hann aðalritari Samtaka frönskumælandi ríkja frá 16. nóvember 1997 til 31. desember 2002.
Tilvísanir
- ↑ „„Engin niðurlæging heldur orða á brjóstið"“. Dagblaðið Vísir. 23. nóvember 1996. bls. 30.