Frá lokum borgarastyrjaldarinnar hefur efnahagur landsins vaxið hratt, enda á landið miklar náttúruauðlindir. Helsta útflutningsafurð landsins er hráolía, en auk þess flytur Angóla út úran, demanta, gull og báxít. Þrátt fyrir þetta eru lífsgæði almennings í Angóla slæm og ójöfnuður er mikill. Lífslíkur og barnadauði eru með því sem verst gerist í heiminum. Portúgalska er opinbert tungumál í Angóla en auk hennar eru töluð mörg frumbyggjamál: stærst þeirra eru umbundu, kimbundu og kikongo. Yfir helmingur íbúa aðhyllist rómversk-kaþólska trú og um fjórðungur mótmælendatrú.
Heiti
Heitið Angola er nafn sem Portúgalir notuðu yfir landið og síðar nýlendu sína á svæðinu. Það kemur fyrst fyrir í skrá Dias de Novais frá 1571. Þeir drógu heitið af titlinum ngola sem konungar ríkisins Ndongo notuðu. Á þeim tíma var Ndongo að nafninu til undir Konungsríkinu Kongó en sóttist eftir auknu sjálfstæði.
Landafræði
Lofslag
Loftlslag í Angóla einkennist af rigningartíma og þurrkatíma. Í norður hlutanum er regntíminn yfirleitt í sjö mánuði frá september til april en í suðurhlutanum er regntíminn styttri eða frá nóvember til febrúar. Hitinn lækkar eftir því sem fjær dregur miðbaug og meiri hæð yfir sjávarmáli og hækkar almennt eftir því sem nær dregur Atlantshafinu.
Stjórnmál
Stjórnsýsluskipting
Angóla skiptist frá 2015 í 18 héruð og 162 sveitarfélög sem aftur skiptast í 559 byggðir. Héruðin eru:
Kabinda-hérað hefur þá sérstöðu að vera útlenda sem er alveg aðskilin frá Angóla með 60 km breiðri ræmu af landsvæði Austur-Kongó meðfram Kongófljóti. Það er 7.283 km² að stærð. Kabinda á landamæri að Vestur-Kongó í norðri og Austur-Kongó í austri og suðri. Höfuðstaður héraðsins er borgin Kabinda.
Samkvæmt manntali frá 1995 voru íbúar Kabinda-héraðs um 600.000, en þar af bjuggu 400.000 í nágrannaríkjunum. Mannfjöldaáætlanir eru mjög óáreiðanlegar. Kabinda er að mestu vaxið regnskógi og þaðan berst harðviður, kaffi, kakó, hrágúmmí og pálmaolía. Kabinda er þó þekktast fyrir stórar olíulindir undan ströndinni og hefur verið kallað „Kúveit Afríku“ vegna þeirra. Olíuútflutningur er meira en helmingur af útflutningsverðmætum héraðsins. Mest af þessari olíu fannst meðan landið var enn undir nýlendustjórn Portúgala af fyrirtækinu Cabinda Gulf Oil Company frá 1968.
Allt frá því Portúgal gaf völdin í landinu eftir við skæruliðahópa sjálfstæðissinna hafa aðskilnaðarsinnar andsnúnir stjórn Angóla stundað skæruhernað í Kabinda. Framvörður fyrir frelsun útlendunnar Kabinda lýsti yfir sjálfstæði frá Angóla og stofnun Lýðveldisins Kabinda árið 1975. Eitt af einkennum aðskilnaðarhreyfinga í Kabinda er hvernig þær hafa klofnað í stöðugt minni einingar.