Vilborg Arna Gissurardóttir (f. 1980) er íslenskur ævintýramaður og pólfari, ferðamálafræðingur að mennt. Hún hóf göngu sína að Suðurpólnum um miðjan nóvember 2012, eins síns liðs, og komst þangað 17. janúar 2013 eftir 60 daga göngu.[1]
Árið 2017 komst Vilborg á hátind Everest-fjalls fyrst íslenskra kvenna.[2]