Um skoska þingið sem var til fyrir myndun Bretlands, sjá skoska stéttaþingið.
Skoska þingið (gelíska: Pàrlamaid na h-Alba; skoska: Scottish Pairlament) er þingSkotlands sem fengið hefur völd sín frá breska þinginu Það hefur aðsetur í Holyrood í höfuðborginni Edinborg. Þingið er þekkt í daglegu tali sem Holyrood (sbr. Westminster) og er lýðræðisleg stofnun þar sem 129 þingmenn sitja. Þingmenn eru kosnir á fjögurra á fresti.
Í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1997, ákváðu Skotar að hið núverandi skoska þing skyldi stofnað og var það gert með Skotlandslögunum 1998. Þessi lög kveða á um þau mál sem heyra undir stjórn Skotlands og þau mál sem eru áfram undir stjórn breska þingsins. Nánar tiltekið, öll mál sem ekki er sérstaklega tilgreint að séu á könnu breska þingsins heyra undir stjórn Skotlands. Breska þingið hefur þó áfram vald til að breyta málum sem skoska þingið hefur lögsögu yfir, ef svo ber undir. Fyrsti fundur skoska þingsins var haldinn þann 12. maí1999.