Ragnheiður Elín er fædd og uppalin í Keflavík. Hún lauk stúdenstprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík árið 1987. Hún fékk bestu einkunnina af þeim sem útskrifuðust.[1] Hún lauk BA-prófi í stjórnmálafræði Háskóla Íslands 1991 og MS-próf í alþjóðasamskiptum frá Georgetown University í Bandaríkjunum. Á árunum 1995-1998 starfaði hún fyrir Útflutningsráð Íslands, þar af 1996-1997 í New York. Hún var aðstoðarmaður Geirs H. Haarde á árunum 1998-2007 sem fjármála-, utanríkis- og forsætisráðherra. Ragnheiður sat í nefnd þeirri sem samdi um brottflutning varnarliðsins frá Keflavíkurstöðinni. [2]
Ragnheiður Elín átti sæti á Alþingi á árunum 2007-2016, 2007-2009 fyrir Suðvesturkjördæmi en síðan fyrir Suðurkjördæmi. Ragnheiður Elín var þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins 2010-2012 og var iðnaðar- og viðskiptaráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks 2013-2017.