Rósa er 33 snúninga LP hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1972. Hljóðritun fór fram í Ríkisútvarpinu undir stjórn Péturs Steingrímssonar. Ljósmynd á plötuumslagi tók Óli Páll.
Lög þeirra feðginanna eru létt og skemmtileg og auðlærð og eiga jafnvel eftir að verða þess valdandi, að fleiri gefi sig að þvi að draga fram gamalt, íslenzkt efni og færa það í nýrri klœði, án þess að breyta hinu upphaflega innihaldi. Útsetningar á lögunum eru meistaraverk útaf fyrir sig, en þœr gerði Jón Sigurðsson og stjórnar hann jafnframt hljómsveit. Koma allt að fjórtán hljóðfœraleikarar við sögu þegar þeir eru flestir. Rósa Ingólfsdóttir sér ein um allan söng á plötunni og syngur í mörgum laganna rödd með sjálfri sér, sem gerir sönginn lítríkari. Nafnið „rósa" teiknaði Rósa sjálf, sem auk þess að syngja, leika á gítar og semja lög, er lœrður auglýsingateiknari og þegar þetta er ritað, um það bil að taka lokapróf úr Leikskóla Þjóðleikhússins.