Oddur Gottskálksson

Oddur Gottskálksson (1495/14961556) var meðal siðaskiptamanna í Skálholti og sá sem þýddi Nýja testamentið á íslensku. Síðar varð hann lögmaður.

Foreldrar hans voru Gottskálk „grimmi“ Nikulásson biskup á Hólum og Guðrún, laundóttir Eiríks slógnefs Loftssonar, Guttormssonar. Oddur var sendur til föðurfjölskyldu sinnar í Björgvin í Noregi, um það bil sex ára að aldri, og ólst þar upp. Þaðan hélt hann til náms í Þýskalandi þar sem hann kynntist hugmyndum mótmælenda og er talið að hann hafi meðal annars verið í Wittemberg og hlýtt þar á Martein Lúter og Melankton samstarfsmann hans. Hann sneri aftur til Íslands fyrir 1535 og var ráðinn af Ögmundi biskupi sem skrifari. Í Skálholti kynnist hann Gissuri Einarssyni og fleiri siðaskiptamönnum og hófst handa við að þýða Nýja testamentið, að eigin sögn úti í fjósi:

Jesús, lausnari vor, var lagður í einn asnastall en nú tek ég að útleggja og í móðurmál mitt að snúa orði hans í einu fjósi.“

Hann mun einkum hafa stuðst við þýska þýðingu Lúters frá um 1530 en einnig latneskar þýðingar. Hafði hann lokið við þýðingu Mattheusarguðspjalls þegar hann hvarf frá Skálholti, hugsanlega vegna þess að upp um hann komst. Hann lauk svo við þýðinguna og hélt til Danmerkur þar sem hann fékk leyfi konungs til að láta prenta hana eftir að fræðimenn við Kaupmannahafnarháskóla höfðu lagt blessun sína yfir verkið. Prentuninni lauk 12. apríl 1540. Nýja testamentisþýðing Odds er fyrsta bókin sem prentuð var á íslensku.

Oddur þykir hafa unnið stórvirki með þýðingu sinni, sem seinna var tekin nær óbreytt inn í Guðbrandsbiblíu og hefur líklega haft veruleg áhrif á þróun íslenskrar tungu. Stíllinn þykir lipur og þjáll, orðaforðinn auðugur og málfarið ótrúlega gott, ekki síst miðað við það að Oddur ólst að mestu leyti upp erlendis. Hann hafði að sjálfsögðu heldur engar orðabækur eða önnur hjálpartæki að styðjast við. Oddur hélt svo áfram að þýða aðra trúarlega texta og var sumt af því prentað. Nýja testamenti Odds kom þó ekki út aftur sem sjálfstætt rit fyrr en 1988.

Um sama leyti var Gissur Einarsson, vinur Odds, sem var líka heitbundinn Guðrúnu systur hans, í Kaupmannahöfn að taka biskupsvígslu og urðu þeir samferða heim til Íslands um sumarið. Næstu árin bjó Oddur á Reykjum í Ölfusi og fékkst aðallega við þýðingar og fræðistörf en kemur lítið við sögu siðaskiptanna. Páll Hvítfeldur hirðstjóri setti Orm Sturluson af sem lögmann 1552 og var Oddur þá kjörinn lögmaður norðan lands og vestan í hans stað en er þó ekki talinn hafa tekið við embættinu fyrr en 1554. Hann bjó lengst af á Reykjum en síðast á Reynistað í Skagafirði. Þegar Oddur var á leið til Alþingis snemma sumars 1556 var hann nærri drukknaður á Norðlingavaði í Laxá í Kjós, komst þó á land en dó næstu nótt.

Oddur var sagður hæglátur maður og friðsamur og virðist fremur hafa viljað sinna fræðistörfum en sækjast eftir mannvirðingum. Fylgikona hans var Þuríður stóra Einarsdóttir, sem áður hafði fylgt Þórði Einarssyni (d. 1530) presti í Hítardal og síðan Sigmundi Eyjólfssyni (d. 1537), sem kjörinn var 1536 til að taka við Skálholtsstól af Ögmundi biskupi, móðurbróður sínum, og tók vígslu en lést áður en hann tók við stólnum. Þau Oddur áttu einn son sem fluttist til Noregs og dó þar barnlaus.

Wikisource
Wikisource
Á Wikiheimild er að finna verk eftir eða um:

Heimildir

  • Safn til sögu Íslands. 2. bindi, Kaupmannahöfn 1886.
  • „Nýja testamenti Odds. Morgunblaðið 17. febrúar 1989. Gagnasafn mbl.is“.
  • „Oddur norski og Nýja testamentið 1540. Ritmennt. Ársrit Landsbókasafns Íslands 10, 2005, 133–150“.
  • „Biblían á íslensku. Af vef Hins íslenska biblíufélags. Sótt 29. janúar 2010“.


Fyrirrennari:
Ormur Sturluson
Lögmaður norðan og vestan
(15541556)
Eftirmaður:
Eggert Hannesson

Read other articles:

Pour les articles homonymes, voir Loi travail. Loi relative au travail, à la modernisation du dialogue social et à la sécurisation des parcours professionnels Données clés Autre(s) nom(s) Loi El KhomriLoi travail Présentation Pays France Type Loi ordinaire Branche Droit du travail Adoption et entrée en vigueur Législature XIVe Gouvernement Valls II Lire en ligne Loi du 8 août 2016 modifier La loi no 2016-1088 du 8 août 2016 relative au travail, à la modernisation du dialogue s...

 

Advertentie uit 1914. Kantoor aan het Kerkplein, Den Haaggebruikt 1895-1927 Kantoor Groenhovenstraat, Den Haaggebruikt 1927-1995 De Nederlanden van 1845 was een Nederlands verzekeringsbedrijf, dat met de fusie met de Nationale Levensverzekering-Bank van 1963 opgegaan is in Nationale-Nederlanden. Geschiedenis Na de afsplitsing van België in 1830 ontstond in Noord-Nederland een verzekeringsvacuüm omdat de markt voor verzekeringen tot dan toe met name in Belgische handen was. Er ontstond dan o...

 

TsunaguCover edisi regularSingel oleh Arashidari album UntitledSisi-B Reach For the Sky (Ten Made Todoke) Dakishimetai Under the Radar Oki ni Mesu Mama Dirilis28 Juni 2017 (2017-06-28)FormatCD singleDirekam2017GenrePop rock[1]Durasi31:51[2]LabelJ StormKomponis musikPeter Nord, Kevin Borg, Hirofumi SasakiLirikuspaddyKronologi singel Arashi I'll Be There (2017) Tsunagu (2017) Doors ~Yuuki no Kiseki~ (2017) Tsunagu adalah single ke-52 boyband Jepang Arashi. Single ini dirili...

Este artículo o sección tiene referencias, pero necesita más para complementar su verificabilidad.Este aviso fue puesto el 1 de septiembre de 2022. San Bartolomé municipio de España Escudo San BartoloméUbicación de San Bartolomé en España. San BartoloméUbicación de San Bartolomé en la provincia de Las Palmas.País  España• Com. autónoma  Canarias• Provincia  Las PalmasLas Palmas• Isla  Lanzarote• Partido j...

 

Untuk kegunaan lain, lihat TVE. Televisión EspañolaJenisJaringan televisiNegara SpanyolKetersediaanNasional dan internasionalTanggal peluncuran28 Oktober 1956 (1956-10-28)Kantor pusatMadrid,  SpanyolPemilikTelevisión Española, S.A.Induk perusahaanRTVETokoh kunciSantiago González (Ketua)Format gambar480i (SD)Situs webhttp://www.rtve.es Televisión Española adalah stasiun televisi nasional milik negara di Spanyol. TVE milik RTVE Corporation yang memiliki tanggung jawab kese...

 

دوري الولايات المتحدة - البطولة الموسم الحاليبطولة الدوري الأمريكي 2019 تاريخ الإنشاء 2011 الرياضة كرة القدم البلد  الولايات المتحدة و  كندا عدد الفرق 36 فريق الأكثر فوزا لويسفيل سيتي الصعود الدوري الأمريكي لكرة القدم  هبوط بطولة الدوري الأمريكي الدرجة الأولى  مسابقا

Let the Truth Be Told Студійний альбомВиконавець Z-RoДата випуску 12 квітня 2005Записаний 2004-2005Жанр Ґанґста-реп, південний хіп-хопТривалість 71:22Мова англійськаЛейбли Asylum, Rap-A-LotПродюсер Майк Дін, Містер Лі, Z-RoХронологія Z-Ro Попередній The Life of Joseph W. McVey(2004) I'm Still Livin' (2006) Наступний Професій...

 

?Китайський окунь Siniperca scherzeri Біологічна класифікація Домен: Ядерні (Eukaryota) Царство: Тварини (Animalia) Підцарство: Справжні багатоклітинні (Eumetazoa) Тип: Хордові (Chordata) Підтип: Черепні (Craniata) Надклас: Щелепні (Gnathostomata) Клас: Променепері (Actinopterygii) Підклас: Новопері (Neop...

 

As referências deste artigo necessitam de formatação. Por favor, utilize fontes apropriadas contendo título, autor e data para que o verbete permaneça verificável. (Julho de 2020) Esta página cita fontes, mas que não cobrem todo o conteúdo. Ajude a inserir referências. Conteúdo não verificável pode ser removido.—Encontre fontes: ABW  • CAPES  • Google (N • L • A) (Julho de 2020) Bandeira dos Tártaros da Crimeia Aplica

університет Вінницький державний педагогічний університет імені Михайла Коцюбинського ВДПУ 49°14′30″ пн. ш. 28°29′46″ сх. д. / 49.24172000002777594° пн. ш. 28.49638400002777772° сх. д. / 49.24172000002777594; 28.49638400002777772Координати: 49°14′30″ пн. ш. 28°29′46″ сх. д....

 

Species of legume Panjang A. lasiocarpa flowers. Scientific classification Kingdom: Plantae Clade: Tracheophytes Clade: Angiosperms Clade: Eudicots Clade: Rosids Order: Fabales Family: Fabaceae Subfamily: Caesalpinioideae Clade: Mimosoid clade Genus: Acacia Species: A. lasiocarpa Binomial name Acacia lasiocarpaBenth. Occurrence data from AVH Acacia lasiocarpa, commonly known as Panjang or Pajang[1] or glow wattle,[2] is a shrub of the genus Acacia and the subgenus Pulchel...

 

Not to be confused with Fox Crime. Television channel CrimeCountryAustraliaBroadcast areaAustraliaProgrammingLanguage(s)EnglishPicture format576i (SDTV) 1080i (HDTV)Timeshift serviceCrime +2OwnershipOwnerFoxtel NetworksSister channelsFoxtel Networks channelsHistoryLaunched1 January 2014; 9 years ago (2014-01-01)Former namesTVHits (2014–2019) FOX Crime (2019-2023)AvailabilityStreaming mediaFoxtel GoChannel 113Bingebinge.com.au Crime (formerly Fox Crime) is an Australian sub...

Chinese food dish You can help expand this article with text translated from the corresponding article in Chinese. (August 2023) Click [show] for important translation instructions. Machine translation, like DeepL or Google Translate, is a useful starting point for translations, but translators must revise errors as necessary and confirm that the translation is accurate, rather than simply copy-pasting machine-translated text into the English Wikipedia. Do not translate text that appears...

 

Android-based handheld computers by Samsung Samsung Galaxy PlayerGalaxy PlayerDeveloperSamsungManufacturerSamsungTypeHandheld PCRelease dateOctober 14, 2010; 13 years ago (2010-10-14)Lifespan2010-2012Operating systemAndroid 2.2 Froyo (Europe)Android 2.3 Gingerbread (U.S.) Unofficial: Android 4.4.2 KitKat via CyanogenModCPU1 GHz Samsung Hummingbird processorMemory486 MB RAMStorage8 GB flash memoryDisplayGalaxy Player 4.0800×480 px, 4.0 in (10.2 cm) WVGA Super Clear LCDGalaxy...

 

Mausolée Bouyankouli khanPrésentationType MausoléeReligion IslamPatrimonialité Objet d'un patrimoine culturel matériel significatif de l'Ouzbékistan (d)LocalisationLocalisation Boukhara OuzbékistanCoordonnées 39° 46′ 01″ N, 64° 26′ 41″ Emodifier - modifier le code - modifier Wikidata Le mausolée Bouyankouli khan ou mazar Bouyan Kouli khan est un mausolée situé à Boukhara, édifié en 1358 pour le souverain gengiskhanide du khanat de Dja...

Defunct museum in Brooklyn, New York Morbid Anatomy MuseumEstablishedJune 27, 2014 (2014-06-27)DissolvedDecember 18, 2016 (2016-12-18)LocationBrooklyn, New YorkCoordinates40°40′22″N 73°59′24″W / 40.672844°N 73.990053°W / 40.672844; -73.990053TypeNatural History, Anatomy, Dime MuseumKey holdingsMorbid Anatomy Library, rotating collectionsFounderJoanna Ebenstein, Tracy Hurley Martin, Colin Dickey, Aaron Beebe, Tonya HurleyArchite...

 

Symbol burat of the Greek goddess Owl of Minerva redirects here. For the scientific journal, see The Owl of Minerva (journal). Silver tetradrachm coin at the Museum of Fine Arts of Lyon depicting the owl of Athena (c. 480–420 BC). The inscription ΑΘΕ is an abbreviation of ΑΘΗΝΑΙΩΝ, which may be translated as of the Athenians. In daily use the Athenian drachmas were called glaukes (γλαῦκες, owls). This silver coin was first issued in 479 BC in Athens after ...

 

City in Nevada, United States City in Nevada, United StatesMesquite, NevadaCityCity of MesquiteMain Street in January 2007, near City Hall FlagMotto(s): Escape, Momentarily[1]Location of Mesquite in Clark County, NevadaMesquiteLocation in the United StatesShow map of NevadaMesquiteMesquite (the United States)Show map of the United StatesCoordinates: 36°48′9″N 114°4′56″W / 36.80250°N 114.08222°W / 36.80250; -114.08222CountryUnited StatesStateNev...

Indonesian food distribution company BULOG Public CorporationTypeStatutory corporationIndustryFood distributionFounded10 May 1967 (1967-05-10)HeadquartersJln. Jend. Gatot Subroto Kav. 49 South Jakarta 12950, IndonesiaRevenue Rp 46.6 trillion (2016)Net income Rp 800 billion (2016)Total assets Rp 34.883 trillion (2016)Total equityRp 11.318 trillion (2016)OwnerGovernment of IndonesiaNumber of employees4,693(2016)Websitewww.bulog.co.id BULOG Public Corporation (...

 

Chinese pirate This article needs additional citations for verification. Please help improve this article by adding citations to reliable sources. Unsourced material may be challenged and removed.Find sources: Cai Qian – news · newspapers · books · scholar · JSTOR (March 2014) (Learn how and when to remove this template message) In this Chinese name, the family name is Cai. Cai Qian (Chinese: 蔡牽; pinyin: Cài Qiān; 1761–1809) was a Chinese s...

 

Strategi Solo vs Squad di Free Fire: Cara Menang Mudah!