Miðbæjarskólinn er bygging í miðbæ Reykjavíkur við Fríkirkjuveg 1 við Tjörnina sem var upphaflega barnaskóli. Húsnæðið er nú notað á vegum Kvennaskólans.[1] Á hundrað ára afmæli hússins árið 1998 var það sagt „eitt merkasta hús borgarinnar.“[2] Miðbæjarskólinn er friðað hús.
Miðbæjarskólinn var fullbyggður 1898 en formlega vígður þann 10. október1908. Á fyrsta starfsári Miðbæjarskólans voru þar 285 börn, 304 árið eftir en eftir að lög um fræðsluskyldu barna tóku gildi 1907 jókst fjöldi nemenda úr 472 og í 772.[3] Árið 1930 var nafni skólans breytt í Miðbæjarskólinn.
Upprunalega var byggingin L-laga en seinna var byggð suður-álma og síðan þá hefur húsið verið U-laga. Í portinu þar voru margar samkomur haldnar. Frá og með bæjarstjórnarkosningunum í Reykjavík 1908 var Miðbæjarskólinn aðalkjörstaðurinn til þing- og bæjarstjórnarkosninga og raunar eini kjörstaðurinn um árabil.
Reykjavíkurborg hefur fundið ýmis not fyrir Miðbæjarskólann og meðal annars hafa Fræðslumiðstöð Reykjavíkur og Námsflokkar Reykjavíkur verið með skrifstofuaðstöðu þar.