Jóhann Karl varð konungur 1975 er hann tók við af Francisco Franco sem lést það ár. Hann steig af stóli þann 19. júní 2014 og sonur hans, Filippus 6. tók við krúnunni.
Þann 15. mars árið 2020 svipti Filippus konungur föður sinn öllum ellilífeyri og afsalaði sér öllum arfi frá honum. Þetta var gert vegna uppljóstrana um að Jóhann Karl hefði tekið við um 90 milljónum evra frá Sádi-Arabíu í gegnum aflandsreikninga.[1] Í ágúst 2020 fór Jóhann Karl í sjálfskipaða útlegð frá Spáni vegna hneykslisins.[2] Hann settist að í Sameinuðu arabísku furstadæmunum[3] en sneri heim til Spánar í maí árið 2022.[4]
Helena, hertogaynjan af Lugo (Elena María Isabel Dominica de los Silos de Borbón y de Grecia) (f. 1963). Árið 1995 giftist hún Jaime de Marichalar, hertoga af Lugo. Þau eiga tvö börn: Felipe Juan Froilán (f. 1998) Victoria Federica (f. 2000).
Kristín, hertogaynjan af Palma, Mallorca (Cristina Federica Victoria Antonia de la Santísima Trinidad de Borbón y de Grecia) (f. 1965). Árið 1997 giftist hún Iñaki Urdangarin, hertoga af Palma, Mallorca. Þau eiga fjögur börn: Juan Valentín (f. 1999), Pablo Nicolás (f. 2000), Miguel (f. 2002) og Irene (f. 2005)
Felippus 6. Spánarkóngur (Felipe Juan Pablo Alfonso de Todos los Santos de Borbón y de Grecia) (f. 1968). Árið 2004 giftist hann Letiziu Ortiz. Þau eiga tvær dætur: Leonor (f. 2005) og Sofia (f. 2007). Þann 19. júní varð hann konungur Spánar.