Samkvæmt Stallman er nafnið er borið fram guh-NÚ eða ˌgəˈnɯ eins og það er oftast skrifað í alþjóðlega hljóðstafrófinu.
UNIX-stýrikerfið var þegar víðnotað þegar byrjað var að skrifa GNU, þar sem hönnun þess hafði þegar sannað sig, var ákveðið að gera GNU samhæft því. Hönnun UNIX gerði GNU kleift að skrifa eitt og eitt forrit í einu til að koma í stað fyrir álíka forrit í UNIX. Ekki þurfti þó að skrifa allt frá grunni þar sem ýmsir hlutar t.d. TeX og X-gluggakerfið voru þegar til og voru frjáls. Linus Torvalds skrifaði einnig Linuxstyrikerfiskjarnann fyrir GNU stýrikerfið og er oft talað um GNU stýrikerfið með undirliggjandi Linux kjarnann sem GNU/Linux eða jafnvel einfaldlega Linux þótt GNU sé oftast mun stærri hluti af grunnkóðanum.
Saga
Tilkynnt var um verkefnið í bréfi sem sent var þann 27. september1983 á Usenetfréttahópananet.unix-wizards og net.usoft. Vinna við stýrikerfið byrjaði þó ekki á fullu fyrr en 5. janúar1984 þegar Stallman sagði starfi sínu hjá MIT lausu sökum ótta við það að MIT myndi kasta eign sinni á GNU og/eða trufla dreifingu þess sem frjáls hugbúnaðar.
Um árið 1990 var GNU stýrikerfið nánast tilbúið; það vantaði bara stýrikerfiskjarnann —– Hurd (venjulega kallaður „the Hurd“), en Hurd er ensk skammstöfun fyrir „Hird of Unix-Replacing Daemons“ og þar er Hird aftur (ensk) skammstöfun á „Hurd of Interfaces Representing Depth“.[1]
Það má því segja að skammstöfunin sé endurkvæm í tveim skrefum.
↑
Schwinge, Thomas. „Uppruni nafnsins á Hurd“ (enska). Sótt 12. mars 2009. „Hurd stands for Hird of Unix-Replacing Daemons. And, then, Hird stands for Hurd of Interfaces Representing Depth.“
Strategi Solo vs Squad di Free Fire: Cara Menang Mudah!