Bærinn Colchester er í norðausturhluta sýslunnar og er elsti bærinn í Englandi, stofnaður áður en Rómverjar komu til landsins. Á tímum Rómverja kallaðist hann Camulodunum. Upprunalega var Colchester höfuðstaður rómverska skattlandsinsBrittaníu og hafði eigin myntsláttu. Árið 61 var borgin lögð í rúst í uppreisn Boudicu drottningar. Síðar varð London höfuðborg skattlandsins.
Fjölbreytt byggð er í sýslunni. Útþensla London inn í sýsluna er hindruð af svokölluðu „græna belti“, en í sýslunni eru þó tveir bæir, Basildon og Harlow, sem voru byggðir upp frá grunni til að hýsa fólk sem flutt hafði frá London eftir eyðilegginguna þar í seinni heimsstyrjöldinni. Báðir hafa vaxið heilmikið síðan. Eppingskógur takmarkar líka útþenslu frá London.
Vegna nálægðar London við Essex fara margir íbúar sýslunnar daglega til London í vinnu, sérstaklega frá þeim bæjum þar sem lestarstöðvar eru. Í Bretlandi er oft grínast með staðalímyndina „Essex girl“, sem þýðir nánast sama og heimsk ljóska, en „Essex man“ er aftur á móti notað um óheflaða menn af verkamannastétt sem kjósa Íhaldsflokkinn.
Fyrirhuguð er uppbygging í suðausturhluta sýslunnar, þar sem þegar eru þéttbýliskjarnarnir Southend og Thurrock á Thames Gateway-svæðinu. Í suðvesturhluta sýslunnar eru svæði sem hafa nánast runnið saman við London, til dæmis Buckhurst Hill og Chigwell, sem talin eru hluti af þéttbýli Stór-Lundúnasvæðisins. Norðan við „græna beltið“ er aðallega dreifbýli, nema bæirnir Colchester og Chelmsford. Í norðarhlutanum eru margir smábæir, þorp og smáþorp með húsum reistum úr hefðbundnum efnivið eins og timbri og múrsteini. Oft eru húsin þar með þökum úr leirhellum eða hálmi.
Aðalflugvöllurinn í Essex er London Stansted-flugvöllur og þaðan er flogið til ákvörðunarstaða í Evrópu og Norður-Ameríku. Southend-flugvöllur, sem var áður einn fjölsóttasti flugvöllur á Bretlandi, er núna í endurbyggingu, en þaðan er þó flogið til Ermarsundseyja. Í sýslunni eru líka nokkrir litlir flugvellir, sumir þeirra voru gerðir á tímum fyrri eða seinni heimsstyrjaldarinnar. Nú eru þeir notaðir fyrir einkaflugvélar eða til flugkennslu.
Iðnaðarsvæði eru aðallega í suðurhluta Essex en annars staðar í sýslunni er aðallega stundaður landbúnaður. Bærinn Harlow er miðstöð fyrir rafeindavara-, vísinda- og lyfjafyrirtæki, og evrópskar höfuðstöðvar Ford-bílaverksmiðjanna eru í Brentwood. Í bænum Loughton er prentsmiðja sem prentar breska og erlenda peningaseðla. Mörg rafeindafyrirtæki hafa byggst upp í Chelmsford allt frá árdögum rafeindaiðnaðsins, og þar eru líka nokkur vátrygginga- og fjármálafyrirtæki. Gosframleiðandinn Britvic er einnig þar.