Crack the Skye er fjórði geisladiskurinn eftir Bandarísku þungarokkshljómsveitina Mastodon en hann var gefinn út 24. mars2009 af Reprise Records.[1][2] Diskurinn komst í 11 sæti á Billboard 200 en hann seldist í 41,000 eintaka í fyrstu viku.[3] Í Ástralíu komst diskurinn í 19 sæti.[4] Í september2010 hafði diskurinn selt 200,000 eintök í Bandaríkjunum. Sem gerir hann söluhæsta diskinn þeirra eins og er [5]
Crack the Skye er fyrsti geisladiskurinn þar sem að trommuleikarinn Brann Dailor fær að vera þriðji söngvari.
Tónlist og texti
Trommuleikarinn Brann Dailor lýsir disknum eins og hann sé "einbeittari" en fyrri diskurinn Blood Mountain. [6] Eftir nokkur viðtöl þá hefur Dailor einnig sagt að diskurinn tengist fagurfræði og list frá Tsarist Russia, það að vera út úr líkamanum sínum og kenningar Stephen Hawking um ormagöng[7]. Ásamt því þá var þessi diskur gerður til að heiðra systur Brann Dailor en hún, Skye Dailor, framdi sjálfsmorð þegar hún var 14 ára.
Viðtökur
Upphaflegu viðtökur við Crack the Skye voru mjög góðar. Á Metacritic, sem gefur einkunn upp í 100 byggt á mismunandi umsögnum gagnrýnenda, fær diskurinn 82. Þetta er byggt á 29 umsögnum og gefur til kynna að diskurinn fær "alhliða lof". [8]Time Magazine setti diskinn í 3. sæti í "topp 10 diskur frá 2009" [9]. Diskurinn var einnig valinn diskur ársins hjá Rock Sound. Einnig komst diskurinn í 17. sæti yfir bestu diska ársins hjá Spin Magazine[10].
Lagalisti
Öll lög voru samin af Mastodon, fyrir utan "Crack the Skye" (Scott Kelly með viðbót við textann).