Biskajaflói eða Fetlafjörður á íslensku (spænska: Golfo de Vizcaya eða Mar Cantábrico; franska: Golfe de Gascogne; baskneska: Bizkaiako Golkoa) er stór flói í Norður-Atlantshafi á því hafsvæði sem gengur út frá Frakklandi til vesturs og frá Spáni til norðurs, og tekur nafn sitt í flestum málum eftir spænska héraðinu Vizcaya.
Íslenskun á Biskajaflóa
Í orðabókum er Fetlafjörður hið íslenska nafn á Biskajaflóa. Og í þýðinguMagnúsar Ásgeirssonar á „Ballad of the Bolivar“ eftir Rudyard Kipling (texti sem Bubbi söng á plötu sinni Plágunni við eigið lag) er Fetlafjörður kallaður „Fetlaflói“ í viðlaginu. [1] Fyrsta erindi er svona: