3. deild karla í knattspyrnu var haldin í þriðja sinn árið 1968. Leikið var í þremur riðlum, þar á meðal einum sem alfarið var skipaður félögum frá Austurlandi og kepptu sigurvegararnir sín á milli ásamt neðsta liði 2. deildar um tvö laus sæti í næstefstu deild að ári, var það fyrirkomulag viðhaft vegna fjölgunar liða í efstu deild. Völsungur og Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu hrepptu sætin tvö.
Ungtemplarafélagið Hrönn varð fyrsta Reykjavíkurfélagið til að taka þátt í keppni í þriðju deild. Snæfellingar höfðu talsverða yfirburði og unnu alla leiki sína í riðlinum.
Íþróttafélagið Stefnir frá Súgandafirði hætti keppni. Ekki varð ljóst fyrr en vel var liðið á sumar hvernig riðillinn yrði endanlega skipaður þar sem Knattspyrnufélag Siglufjarðar og Íþróttabandalag Ísafjarðar áttu eftir að útkljá hvort félagið félli niður um deild frá fyrra ári.
Fimm lið kepptu í Austurlandsriðli 3. deildar en Ungmennafélag Stöðfirðinga og Huginn Seyðisfirði drógu sig úr keppni.
Úrslitakeppni fjögurra liða um tvö laus sæti fór fram á þremur dögum, 19.-21. ágúst á Melavelli og Hafnarfjarðarvelli. Völsungar og Snæfellingar tryggðu sér tvö efstu sætin, þeir síðarnefndu með 1:1 jafntefli gegn Ísfirðingum í lokaleik. Ekki tókst þó að láta úrslitaleikinn um 3. deildarmeistaratitilinn fara fram fyrr en í júlí árið eftir og urðu Húsvíkingar þar hlutskarpastir.