Þjóðgarðar á Íslandi

Ísland hefur þrjá þjóðgarða, sá fyrsti við Þingvelli var stofnaður árið 1930. Eftir 2008 voru þrír þjóðgarðar en Skaftafell og Jökulsárgljúfur sameinuðust þá inn í hinn stóra Vatnajökulsþjóðgarð. Umhverfisráðuneyti og undirstofnun þess Umhverfisstofnun fer með umsjón yfir þjóðgörðum.

Þjóðgarðar

Nafn Mynd Staðsetning Stofnaður Svæði
Snæfellsjökull Vesturland 2001 183 km2 (stækkaður 2021)
Vatnajökulsþjóðgarður Suðausturland 2008 14967 km2 (stækkaður 2019)[1]
Þingvallaþjóðgarður Suðurland 1930 228 km2

Fyrrum þjóðgarðar

  • Innlimuðust inn í Vatnajökulsþjóðgarð árið 2008.
Name Mynd Staðsetning Stofnaður Svæði
Jökulsárgljúfur Norðurland 1973
Skaftafell Suðausturland 1967 4807 km2

Miðhálendisþjóðgarður

Hugmyndir hafa verið uppi að gera miðhálendið að þjóðgarði en þá myndi Vatnajökulsþjóðgarður innlimast inn í hann. Stærð þjóðgarðsins yrði meira en 30.000 ferkílómetrar. Eitt að þingmálum Vinstri Grænna frá 2017 var að koma að stofnun hans. Meðferð málsins í þinginu hefur reynst erfið og voru stjórnarliðar þeirra hjá Sjálfstæðisflokki til að mynda tregir til að samþykkja þjóðgarðinn í þeirri mynd sem lagt var upp með. Sveitarstjórnir og önnur samtök hafa lýst efasemdum um miðhálendisþjóðgarð og þykir sveitarfélögum réttur sinn skertur í stjórnar og skipulagsmálum með þjóðgarði.

Tengt efni

  1. https://www.vatnajokulsthjodgardur.is/is/fraedsla/utgefid-efni/frettir/vatnajokulsthjodgardur-a-heimsminjaskra-unesco

Strategi Solo vs Squad di Free Fire: Cara Menang Mudah!