Union Berlin er þýsktknattspyrnufélag frá Berlín. Á Kaldastríðsárunum var Union Berlin í staðsett í austurhluta borgarinnar og tók það því þátt í austur-þýsku deildinni. Árið 1990 féll múrinn og Þýskaland var sameinað á ný. Við það hóf liðið að spila í neðri deildum sameinaðs Þýskalands, þar til í fyrra þegar því tókst að komast upp í Bundesliga. Þeirra helsti rígur er við nágranna sína í vestur hluta borgarinnar Hertha Berlin. Þrátt fyrir að hafa unnið fáa titla er Union Berlin gríðarlega vinsælt félag í Berlín og á það stóran hóp af stuðningsmönnum bæði í Þýskalandi og víðar.
Árangur Union Berlin
Union Berlin státar bara af einum stórum titli hingað til, þ.e Austur-Þýska bikarmeistaratitlinum árið 1968, en það hefur unnið töluvert af neðrideildartitlum.