Fyrstu útsendingar á stafrænu sjónvarpi á Íslandi hófust árið 1998. Nú er verið að leggja hliðrænt sjónvarp af með því að slökkva á hliðrænum sjónvarpssendum í áföngum. Slökkt var á fyrstu sendunum þann 2. september2013. Áætlað er að slökkt verði á öllum hliðrænum sjónvarpssendum fyrir 31. desember2014.[1]
RÚV og Vodafone eru að vinna saman til að setja upp nýtt stafrænt dreifingarkerfi. Vodafone rekur þetta kerfi í 15 ár frá fyrstu lokunum á hliðrænum sendingum. Til að ná útsendingunum þarf tæki sem getur skilið staðalinn DVB-T eða DVB-T2.[2] Nýja kerfið mun flytja fjórar sjónvarpsrásir í háskerpu. RÚV mun reka tvær þessara rása og Vodafone hinar tvær. Gert er ráð fyrir að stafrænar útsendingar nái til 99,8% Íslendinga um loftnet.[1]
Innleiðing
Þann 5. nóvember2002 skipaði þáverandi samgönguráðherra Sturla Böðvarsson starfshóp til að gera tillögu um innleiðingu á stafrænu sjónvarpi á Íslandi.[3] Þá var sett skilyrði um að stafrænar útsendingar næðu til 99,9% landsmanna.[3] Árið 2003 gaf Samgönguráðuneytið út skýrslu um stöðu stafræns sjónvarps á Íslandi og hvernig skyldi fara að innleiðingu þess.[3] Í henni var mælt með því að sameiginlegt stafrænt dreifingarkerfi yrði stofnað og að tryggt væri að allir aðilar hefðu jafnan aðgang að því.
Í skýrslunni voru ýmsir valkostir skoðaðir og ákveðið var að hagkvæmasta leiðin til að dreifa stafrænu sjónvarpi var með jarðbundnu útsendingarkerfi byggt á staðlinum DVB-T.[3]
Áfangaskipting
Verið er að slökkva á hliðrænum útsendingum í áföngum. Tímasetningar lokana er svona:[4]