Nótt í Moskvu og Ship-o-hoj |
---|
|
Bakhlið |
|
Flytjandi | Ragnar Bjarnason, hljómsveit Svavars Gests |
---|
Gefin út | 1962 |
---|
Stefna | Dægurlög |
---|
Útgefandi | Íslenzkir tónar |
---|
Nótt í Moskvu og Ship-o-hoj er 45-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1962. Á henni syngur Ragnar Bjarnason tvö lög með hljómsveit Svavars Gests. Hljómsveitina skipuðu auk Svavars, Magnús Ingimarsson, Reynir Jónasson, Gunnar Pálsson og Garðar Karlsson. Útsetning: Magnús Ingimarsson. Platan er hljóðrituð í mono. Upptaka: Ríkisútvarpið. Umslag: Amatörverslunin ljósmyndastofa. Prentun: ÞEGG. Pressun: AS Nera í Osló.
Lagalisti
- Ship-o-hoj - Lag - texti: Oddgeir Kristjánsson - Loftur Guðmundsson - Hljóðdæmiⓘ
- Nótt í Moskvu - Lag - texti: Solovyov-Sedoi - Jónas Árnason - Hljóðdæmiⓘ