Kristinn Hallsson syngur |
---|
|
Bakhlið |
|
Flytjandi | Kristinn Hallsson, Fritz Weishappel |
---|
Gefin út | 1954 |
---|
Stefna | Sönglög |
---|
Útgefandi | Íslenzkir tónar |
---|
Kristinn Hallsson syngur er 78-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1954. Á henni syngur Kristinn Hallsson íslensku lögin Nótt og Í dag skein sól við píanóundirleik Fritz Weishappel. Platan er hljóðrituð í mono og tekin upp hjá Ríkisútvarpinu. Pressun: AS Nera í Osló.
Lagalisti
- Nótt - Lag - texti: Árni Thorsteinsson - Magnús Gíslason- Hljóðdæmiⓘ
- Í dag skein sól - Lag - texti: Páll Ísólfsson - Davíð Stefánsson - Hljóðdæmiⓘ