Friðland að Fjallabaki eða Fjallabak er hluti hálendisÍslands sem er norðan Mýrdalsjökuls norður til Landmannalauga og Hrauneyja. Það var gert að friðlandi árið 1979. Fjallabak er bakhlið fjalla eða svæðið hinum megin fjalla. Svæðið er 47 ferkílómetrar og þekkt fyrir stórbrotna og einstæða náttúru. Svæðið er yfir 500 metra; fjöllótt og einkennist af eldvirkni, hverasvæðum, hraunum, ám og vötnum. Það er mjög litríkt og eru þar meðal annars bergtegundirnar ríólít, hrafntinna og móberg. Síðast gaus þar á 15. öld norður af Landmannalaugum. Gróður er af skornum skammti og takmarkast að mestu við ár og vötn.