Chandrika Kumaratunga (f. 29. júní 1945) er srílanskur stjórnmálamaður. Hún var forsætisráðherra Srí Lanka árið 1994 og síðan forseti Srí Lanka frá 1994 til 2005. Kumaratunga er dóttir tveggja fyrrum forsætisráðherra Srí Lanka; Solomons og Sirimavo Bandaranaike. Hún er eina konan sem hefur verið forseti landsins og var leiðtogi srílanska Frelsisflokksins frá 1994 til 2006.
Æviágrip
Chandrika Kumaratunga nam við klausturskóla Heilagrar Birgittu í Kólombó og síðan við Akvínasarháskólann í borginni. Hún gekk síðan í Sciences Po í París og í Aix-en-Provence. Hún hóf síðan doktorsnám við skólann École pratique des hautes études í París á árunum 1968 til 1970.[1] Þegar Kumaratunga sneri aftur til Srí Lanka árið 1972 hóf hún ekki strax bein afskipti af stjórnmálum en tók þó við ýmsum stöðum hjá ríkisstjórninni. Hún var framkvæmdastjóri nefndar sem fjallaði um landeignarumbætur á árunum 1972 til 1976 og varð síðan forseti Janawasa-nefndarinnar, sem sá um skipulagningu samyrkjubúa, frá 1976 til 1977. Frá 1976 til 1979 var hún jafnframt meðlimur í sérfræðingaráði Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna
Á námsárum sínum í Frakklandi fékk Kumaratunga reynslu af pólitískri blaðamennsku sem starfsmaður hjá blaðinu Le Monde. Eftir heimkomuna til Srí Lanka varð hún ritstjóri dagblaðsins Dinakara Sinhala frá 1977 til 1985.[2]
Einkahagir
Chandrika giftist kvikmyndastjörnunni og stjórnmálamanninum Vijaya Kumaratunga árið 1978 en hann var myrtur tíu árum síðar þann 16. febrúar árið 1988, beint fyrir framan Chandriku og börn þeirra, sem þá voru fimm og sjö ára. Morðinginn var úr marxíska öfgahópnum Janatha Vimukthi Peramuna.
Dóttir þeirra, Yasodhara Kumaratunga (f. 1980), nam við Corpus Christi-skólann við Cambridge, við Læknisfræðiskóla Heilags Georgs og við Lundúnaháskóla, og gerðist læknir. Hún giftist Roger Walker, læknisfræðiráðgjafa í Dorset.[3]
Sonur þeirra, Vimukthi Kumaratunga (f. 1982), nam við Bristol-háskóla og gerðist dýralæknir.
Stjórnmálaferill
Valdataka
Eftir morðið á eiginmanni sínum flúði Chandrika Kumaratunga í tvö ár til London. Hún hóf þátttöku í stjórnmálum eftir heimkomuna til Srí Lanka og var kjörin forsætisráðherra Vesturhéraðs Srí Lanka.[4]
Eftir þingkosningar í ágúst árið 1994 var Kumaratunga útnefnd forsætiráðherra Srí Lanka. Hún var kjörin forseti landsins síðar sama ár með 62,2 % atkvæða. Hún útnefndi móður sína, Sirimavo Bandaranaike, til að taka við af sér í embætti forsætisráðherra.
Hún var endurkjörin þann 21. desember árið 1999 til annars sex ára kjörtímabils með 51,12 % atkvæða gegn Ranil Wickremesinga úr Sameinaða þjóðernisflokknum og tólf öðrum frambjóðendum. Árið 2005 tók forsætisráðherrann Mahinda Rajapakse við af henni á forsetastól eftir að hafa unnið 50,33 % atkvæða í forsetakosningum.
Að liðinni forsetatíð
Í forsetakosningum Srí Lanka árið 2010 lýsti Kumaratunga yfir stuðningi við frambjóðandann Sarath Fonseka, sem bað ósigur.[5]