Auður Jónsdóttir (f. 30. mars1973) er íslenskur rithöfundur og sjálfstætt starfandi blaðamaður. Hún hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2004 fyrir skáldsögu sína Fólkið í kjallaranum. Auður hlaut Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, fyrir Ósjálfrátt árið 2013 og fyrir Þjáningarfrelsið óreiða hugsjóna og hagsmuna í heimi fjölmiðla árið 2018, ásamt meðhöfundum sínum þeim Bára Huld Beck og Steinunni Stefánsdóttur.