Auðunarstofa

Mynd af hinni nýju Auðunarstofu um sumar.

Auðunarstofa eða Timburstofan var reist á Hólum á árunum 1316 til 1317 og stóð í tæp 500 ár eða uns hún var rifin árið 1810. Auðunn rauði Þorbergsson, biskup á Hólum, hafði með sér viði í timburstofuna, þegar hann kom til Íslands 1315. Viðirnir voru dregnir að vetrarlagi frá Seleyri í Borgarfirði, yfir Stórasand, til Hóla, þar sem timburstofan var reist.

Timburstofan var hluti af staðarhúsunum á Hólum, stóð fast sunnan við kirkjugarðinn. Hún var tvískipt, annars vegar bjálkahús eða stokkahús, þ.e. hin eiginlega timburstofa, og hins vegar stafverkshús sem var sambyggt timburstofunni. Stafverkshúsið var á tveimur hæðum, var neðri hæðin stundum kölluð Anddyr eða Forstofa, og sú efri Studium eða Studiumloft. Hugsanlegt er að svalagangur hafi í öndverðu verið meðfram Timburstofunni. Nafnið Auðunarstofa kemur fyrst fyrir í Árbókum Espólíns, þegar sagt er frá niðurrifi stofunnar árið 1810.

Árið 1995 orðaði Bolli Gústavsson vígslubiskup þá hugmynd í Hólanefnd að láta endurgera Auðunarstofu á Hólum. Tókst með samvinnu íslenskra og norskra aðila að koma því í kring, og var Auðunarstofa hin nýja fullfrágengin sumarið 2002. Húsið er allnákvæm endurgerð stofunnar fornu, að öðru leyti en því að stafverkshlutinn er nokkru stærri, til þess að auka notagildi hússins.

Heimildir

  • Þorsteinn Gunnarsson et al., Um Auðunarstofu (Reykjavík: Hólanefnd, 2004).
  Þessi mannvirkjagrein sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Strategi Solo vs Squad di Free Fire: Cara Menang Mudah!