Arne Slot

Arne Slot.

Arend Martijn "Arne" Slot (f. 17. september 1978) er hollenskur knattspyrnustjóri og fyrrum leikmaður. Slot stýrði Feyenoord í Hollandi áður en hann tók við Liverpool FC sumarið 2024.

Slot spilaði sem miðjumaður 1995-2013, fyrir FC Zwolle, NAC Breda og Sparta Rotterdam. Hann hóf þjálfun árið 2016 og með Feyenoord komst hann í úrslit Sambandsdeildar Evrópu, vann Eredivisie og KNVB Cup.

Liverpool

Slot gekk afar vel í byrjun tímabils með Liverpool og vann 11 af fyrstu 12 leikjum liðsins sem er met hjá nýjum stjóra liðsins [1] Fyrir jól vann Liverpool Real Madrid í fyrsta sinn í 15 ár og toppaði liðið Meistaradeild Evrópu.


Tilvísanir

  1. Arne Slot ‘proud’ of record-breaking Liverpool start New York Times, sótt 5. desember, 2024

Strategi Solo vs Squad di Free Fire: Cara Menang Mudah!