Alberto Kenya Fujimori Inomoto[1] (26. júlí 1938 – 11. september 2024) var perúskur stjórnmálamaður sem var 62. forseti Perú frá 28. júlí 1990 til 22. nóvember 2000. Fujimori var afar umdeildur leiðtogi sem lauk stjórnartíð sinni með því að flýja til Japans í miðju stjórnmálahneyksli sem varðaði spillingu og mannréttindabrot.[2][3] Ríkisstjórn hans er kennd við „fujimorisma“ og er þekkt fyrir að hafa sigrað uppreisn maóistahópsinsSkínandi stígs og fyrir að hafa komið á efnahagslegum stöðugleika í Perú.[4][5][6][7]
Fujimori var af japönskum ættum[8] og flúði því til Japans þegar hann var ákærður fyrir spillingu árið 2000. Þegar hann kom til Japans reyndi hann að segja af sér sem forseti með faxskilaboðum en afsögn hans var hafnað af perúska þinginu, sem vildi heldur leysa hann úr embætti með vantrauststillögu. Fujimori var eftirlýstur í Perú vegna ásakana um spillingu og mannréttindabrot og dvaldi því í sjálfskipaðri útlegð þar til hann var handtekinn í heimsókn til Síle árið 2005.[9] Hann var framseldur til Perú svo hægt væri að rétta yfir honum næsta ár.[10]
Í desember 2007 var Fujimori sakfelldur fyrir að skipa húsleit og eignatöku án leitarheimildar og var dæmdur í sex ára fangelsi.[11][12][13] Hæstiréttur Perú staðfesti dóminn eftir áfrýjun.[14] Í apríl 2009 var Fujimori sakfelldur fyrir frekari mannréttindabrot og dæmdur til 25 ára fangelsisvistar fyrir að hafa stuðlað að morðum og mannránum dauðasveitarinnar Grupo Colina á meðan ríkisstjórn hans barðist gegn vinstrisinnuðum skæruliðum á tíunda áratugnum.
Dómurinn, sem staðfestur var af þremur dómurum, var fyrsta skiptið sem lýðræðislega kjörinn þjóðhöfðingi var framseldur til heimalands síns og sakfelldur fyrir mannréttindabrot. Fujimori var sakfelldur fyrir morð, líkamsárás og tvenn mannrán.[15][16][17][18][19] Í júlí 2009 var Fujimori dæmdur í sjö og hálfs árs fangelsi fyrir fjárdrátt eftir að hann viðurkenndi að hafa gefið forstjóra leyniþjónustu sinnar 15 milljónir Bandaríkjadala úr ríkissjóði Perú.[20] Tveimur mánuðum síðar lýsti hann sig sekan í enn einum spillingarréttarhöldunum og var dæmdur til sex ára fangelsisvistar í viðbót.[21] Samkvæmt perúskum lögum afplánaði Fujimori allar fangelsisvistirnar samtímis og kom því ekki til með að sitja inni lengur en 25 ár. Árið 2017 náðaði Pedro Pablo Kuczynski forseti Fujimori af mannúðarástæðum vegna veikinda hans[22] en eftir áfrýjun var náðunin ógilt árið 2018 og svo fyrirskipað að Fujimori skyldi fangelsaður á ný.[23] Fujimori var loks sleppt í desember 2023 eftir að stjórnlagadómstóll Perú staðfesti að náðun hans hefði verið gild að lögum.[24]
Samkvæmt spillingarvísitölu Transparency International frá árinu 2004 er Fujimori sjöundi spilltasti þjóðhöfðingi nútímasögunnar.[25] Dóttir Fujimori er Keiko Fujimori, sem er virk í perúskum stjórnmálum og tapaði naumlega kjöri til forseta árin 2011, 2016 og 2021.